Grænland - Ammassalik, skíðagönguferð - IMG62
Skíðaganga í stórkostlegu umhverfi hárra fjalla Ammassalik eyju á Austurströnd Grænlands.
Eftir tæplega 2 klst. flug frá Reykjavík er lent í sannkölluðum draumaheimi gönguskíðafólks, þar sem snævi þakin fjöll og ísilagðir firðir skarta sínu fegursta. Stemningin er ólýsanleg, í þessu mikilfenglega landslagi og ekki spillir að menning heimafólks er sveipuð sannkallaðri dulúð.
Byggðin á Ammassaliksvæðinu er ein sú afskekktasta á öllu Grænlandi. Þó íbúar séu vissulega með báða fætur í nútímanum eimir þó enn eftir af ævafornri menningu þeirra sem ekki kemur á óvart ef haft er í huga að þetta er einmitt sá kimi Grænlands sem hvað síðast komst í tengsl við vestræna menningu. Margir Inúítanna á þessu svæði lifa enn af veiðum og þriflegir sleðahundar eru oft helsta stolt heimafólks. Hér er tilvalin ferð fyrir þá sem vilja stutta en áhrifamikla gönguskíðaferð á svæði sem er gjörólíkt Íslandi.

Innifalið : Íslensk fararstjórn og leiðsögn,
flug Reykjavík - Kulusuk - Reykjavík,
allur matur,
öll gisting eins og tekið er fram í leiðarlýsingu.
Ekki innifalið : Eigin búnaður samkvæmt búnaðarlista,
drykkir og persónuleg eyðsla,
ferða- slysa eða farangurstrygging,
önnur þjónusta/afþreying sem ekki er tekin fram í dagskrá.
Ath: Með fyrirvörum um breytingar á flugi vegna veðuraðstæðna í Kulusuk, gott er að geta reiknað með degi til vara. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bera ekki ábyrgð á kostnaði sem af slíkri röskun getur hlotist.
Hafa í huga : Hópstærð 6 - 16 manns
Upphafsstaður : Reykjavik domestic airport.

English
Íslenska