Grænland - Á slóðum Eiríks Rauða - IMG70

Hápunktar

  • Stórkostlegt landslag
  • Sambland af göngu og siglingum
Verð frá: 299.000 ISK

Magnað tækifæri til þess að hverfa aftur í tíman á söguslóðir Eiríks Rauða og kynnast um leið heillandi menningu Grænlands

Í júlí og ágúst bjóða Íslenskir Fjallaleiðsögumenn upp á spennandi 8 daga ferð um suðurhluta Grænlands þar sem skyggnst er um á fornum slóðum norrænna manna. Suður Grænland er trúlega sá hluti Grænlands sem býður upp á mesta fjölbreytni í landslagi á heildina litið, jökulheima, heiðalönd, hátinda, firði og fjörur. Í ferðinni göngum við um fjöll og heiðar, fjörur og fjárgötur við rætur stærsta jökuls heims, Grænlandsjökuls. Mikilfenglegir skriðjöklar ganga út úr meginjöklinum og kelfa í sjó fram. Ísjakar lóna á bláum haffleti fjarðanna og einstaka selur skýtur upp kolli. Á meðan við skyggnumst í búskaparhætti nútímans er vert að hugleiða söguna og afdrif norrænna manna á þessum slóðum sem hurfu á dularfullan hátt, þurrkuðust hreinlega út úr sögubókunum. Fyrir áhugafólk um stangveiði bjóðast möguleikar til sjóbleikjuveiða en sjóbleikju er víða að finna, væna og í miklu magni. Þetta er gönguferð í hæsta gæðaflokki um óviðjafnanlegt svæði þar sem við styttum okkur þó stundum leið með því að stökkva um borð í báta með heimafólki.


Innifalið : Íslensk fararstjórn Flug til og frá Íslandi Öll gisting eins og fram kemur í leiðarlýsingu Allur matur Allur flutningur á fólki og farangri eins og fram kemur í leiðarlýsingu
Ekki innifalið : Persónulegur búnaður samkvæmt búnaðarlista Drykkir og annað Kvöldmáltíð síðasta kvöldið ef snætt er af hlaðborði Hotel Narsarsuaq Ferða-, slysa-, og farangurstrygging Útbúnaður til stangveiða Önnur þjónusta/afþreying sem ekki er tekin fram í dagskrá
Hafa í huga : Hópastærð 8 - 12 manns
Upphafsstaður : Reykjavíkurflugvöllur.