D1. Keflavík – Chamonix
Eftirmiðdagsflug frá Keflavík til Genfar þangað sem við ættum að koma uþb 22:30. Leiðin liggur áfram til Chamonix í fylgd staðarleiðsögumanns þar sem við gistum á 3* hóteli þessa fyrstu nótt okkar í faðmi Alpanna.
D2. Chamonix – Les Houches – Col de Tricot – Chalets de Miage
Við höldum af stað í langþráða gönguna eftir leiðsögumaður okkar hefur farið yfir ferðatilhögun, búnað og öryggisatriði. Farið er með strætó til Les Houches og kláfi upp til Bellevue þaðan sem við göngum niður til Bionnassay jökulsins. Tilkomumikil hengibrú er svo upphafið að göngunni upp í Tricot skarðið (2119m). Allan tímann getum við dáðst að mikilfenglegu útsýninu yfir Alpasalina þar sem mest ber á Bionassay nálinni og Gouter tindinum. Niður úr skarðinu höldum við til Miage skálans þar sem við gistum í nótt. Gert er ráð fyrir uþb 5 tíma göngu, 450m hækkun, 600m lækkun.
D3. Chalets de Miage – Armancette – Nant Borrant
Leiðin í dag liggur um svæði á milli Mont Blanc og Beaufortain. Við getum notið óviðjafnanlegs útsýnisins eða látið hugann reika langt aftur í aldir því við fylgjum forn rómverskum vegi upp að Nant-Borrant skálanum (1460m). Gert er ráð fyrir uþb 5 tíma göngu, 800m hækkun og 600m lækkun.
D4. Nant Borrant – Col des Fours – Les Chapieux
Við göngum upp í Bonhomme skarð (2329m) sem opnar leiðina að suðurhluta fjallasvæðisins. Útsýnið á þessum hluta leiðarinnar er ómótstæðilegt en við höldum áfram Fours skarð (2716m) og svo áleiðis um Téte des Fours og Dal Jöklanna (Vallée des Glaciers) að skálanum í Les Chapieux (hæð). Gert er ráð fyrir uþb 7 tíma göngu, hækkun er 1300m og lækkun 800m.
D5. Les Chapieux – col de la Seigne – Mont Fortin – Col Chécrouit
Áfram höldum við og fyrst liggur leiðin í gegnum stórgrýtt La Seigne skarðið og svo þaðan niður í Vény dal, sem liggur í suðaustur hlíðum Mont Blanc. Ef okkur miðar vel á göngunni er möguleiki á að ganga á fjallið Mont Fortin (2758m). Gisting í fjallaskálanum Maison Vieille. Gert er ráð fyrir uþb 7 tíma göngu, 1100m hækkun og 900m lækkun.
D6. Col Chécrouit – Courmayeur – Arnuva – col Ferret - Champex
Eftir að hafa gengið niður í ítalska fjallaþorpið Courmayeur tökum við rútuna til Arnuva, í botni ítalska dalsins Val Ferret. Þaðan göngum við upp í skarðið Grand Col (Stóra skarðið 2537m). Þetta gefur okkur flott útsýni yfir suðurhluta af fjallagarðinum Grandes Jorasses og fjallið Mont Dolent sem hefur þá sérstöðu að eiga landamæri að þrem löndum ; Ítalíu, Sviss og Frakklandi. Síðan höldum við niður í dalinn Val Ferret í Sviss (1740m), þaðan sem við erum við flutt í rútu á gistihús í Champex sem liggur í dalnum Val d´Arpette (1640m). Upplagt er að nota það sem eftir lifir dags til þess að skoða sig um í þessu snotra Alpaþorpi. Gert er ráð fyrir uþb 6 tíma göngu, 800m hækkun og 800m lækkun.
D7. Champex – Fenetre d´Arpette – Trient – Tré le Champs
Skarðið Fenetre d´Arpette (2665m) eru dyr okkar að lokaáfanga ferðarinnar. Úr skarðinu göngum við í þorpið Trient (1280m) og getum á þeirri leið, notið útsýnisins yfir jökulföllin ofan við okkur (í góðri fjærlægð). Úr Trient þorpinu fáum við flutning yfir til þorpsins Tré-le-Champs, ofan við Chamonix dalinn. Þar gistum við í skála og ættum að hafa tækifæri til þess að fylgjast með ógleymanlegu sólarlaginu þar sem Mont Blanc skartar sínu fegursta í forgrunni. Gert er ráð fyrir 7 tíma göngu, 1000m hækkun og 1200m lækkun.
D8. Tré le Champs – Lac Blanc – La Flégére - Chamonix - Keflavík
Á þessum síðasta degi hækkum við okkur aftur og höldum í átt að skarðinu Le Grand Balcon Sud í Náttúruverndarsvæðinu des Aiguilles Rouges (Rauðu Nálarnar). Útsýnið á þessum slóðum ætti ekki að svíkja neinn og við getum notið þess og góðrar hvíldar við Vatnið Hvíta (Lac Blanc, 2352m). Þar gefst okkur líka einstakt útsýni yfir fjallgarðinn Aguilles de Chamonix (Chamonix Nálarnar). Í dagslok göngum við svo niður að La Flegére og Chamonix þar sem við getum sest niður á einn af mörgum veitingastöðum bæjarins og látið líða úr okkur áður en við höldum til Genfar í kvöldflugið heim. Gert er ráð fyrir 6 tíma göngu, 900m hækkun og 1200m lækkun.