Dagur 1. Keflavík - Chamonix
Flogið til Genfar þar sem staðarleiðsögumaður tekur á móti hópnum og fylgir á hótel í fjallabænum Chamonix. Gisting á þægilegu 3* hóteli
Dagur 2. Chamonix – Albert Fyrsti
Eftir morgunmat gefst tími til þess að fara yfir ferðatilhögun og búnað með Gregory áður en lagt er í´ann. Við förum með almenningsvagni upp í þorpið Le Tour, þaðan sem kláfur er tekinn upp í Balme fjallaskarðið. Í skarðinu fáum við smjörþefinn af því sem koma skal, mikilfenglegt fjallasvæðið blasir við augum. Eftir að hafa notið útsýnisins er gengið upp í fjallaskála sem kenndur er við Albert Fyrsta (2702 m). Í eftirmiðdaginn gefst færi á því að æfa ísaxarbremsu og broddabrölt. Gert er ráð fyrir því að gangan taki 2 – 3 klst, hækkun er 500m.
Dagur 3. Albert Fyrsti – Aiguille du Tour – Trient Skáli
Lagt af stað í býtið og gengið sem leið liggur eftir jökli upp í skarðið sem kennt er við fjallið Turninn (le Tour). Skarðið er í 3280 m hæð og handan þess er sjálfan Turninn að finna (Aguille du Tour 3542) og spurning hvort að við gerum okkur ferð þar upp áður en við leggjum af stað yfir Trient hásléttuna þar til komið er að Trient skálanum (3170). Gert er ráð fyrir uþb 5 tíma göngu, hækkun er 800 m og lækkun 200m.
Dagur 4. Trient skáli – Fenêtre de Saleina – Fenêtre du Tour – Chamonix
Trient hásléttan leiðir okkur að rótum skarðsins Fenêtre de Saleina (3267m) og handan þess upp bratta en stutta brekku, beina leið upp í Fenêtre du Tour (3400m). Fjallasýnin er tilkomumikil, og hægt að dást endalaust að norðurhlið Argentiere og Saleina jökulkvosinni umkringdri tindafjöld. Niðurleiðin er svo leikur einn en við göngum að kláfnum í Balme skarðinu og tökum hann niður til Chamonix. Við höldum á 3* hótel og getum skolað af okkur fjallarykið áður en við tökumst á við næstu tinda. Gert er ráð fyrir 5 – 6 tíma göngu, hækkun 550m og lækkun 1400m.
Dagur 5. Chamonix – Montenvers – Mer de Glace – Mer de Glace – Tacul jökull – Requin skáli
Frá Chamonix höldum við með lest upp til Montenvers (1909 m) þaðan sem komast má að Íshafinu (Mer de Glace) sem enginn Alpafari má missa af. Úr þessum jökuldal hækkum við okkur upp til Moulins og áfram að Tacul jökli og upp í Requin skálann. Sérlegir stigar hafa verið settir upp svo að leiðin upp í skálann ætti ekki að reynast ofviða neinum. Skálinn er staðsettur á óviðjafnanlegum útsýnisstað og auðveldlega má teyga í sig útsýnið yfir hið mikilfenglega Geant ísfall. Gert er ráð fyrir 5 tíma göngu, hækkun 900m.
Dagur 6. Requin skáli – Vallée Blanche – Midi skarð – Cosmiques skáli
Nú erum við svo að segja stödd í hjarta fjallaklasans sem er gegnheill ís. Við þræðum okkur á milli jökulsprungna og jökulborga þegar við göngum upp Dalinn Hvíta (Vallée Blanche) allt þar til við komum upp í Midi fjallaskarðið (3532 m), þaðan sem auðveld leið er upp að Cosmique skálanum (3613m). Gert er ráð fyrir 5 ½ tíma göngu, hækkun 1100m
Dagur 7. Cosmiques skáli – Mont Blanc du Tacul – Mont Maudit – Mont Blanc - Chamonix
Þá er það sjálfur toppdagurinn! Við höldum af stað löngu fyrir birtingu, og það eru ennisljósin sem lýsa okkur leið fyrsta kastið á meðan stjörnuskinið víkur fyrir dagrenningunni. Leið okkar er kennd við hin Þrjú Hvítu Fjöll (les Trois Mont-Blanc) og liggur úr Midi skarðinu, yfir öxlina á Mont Blanc du Tacul (4248m). Svo höldum við í gegnum Maudit skarðið og upp brattar brekkur Mont Maudit (4465m), sem er tæknilega erfiðasti kafli ferðarinnar. Eftir þennan hjalla liggur leiðin niður í Brenva skarðið og þaðan síðustu brekkuna upp á sjálfan Toppinn: Mont Blanc (4808m). Af efsta tindi liggur leiðin niður að Bellevue kláfnum (hæð) um svokallaða Gouter leið. Við tökum kláfinn niður í dal og náum rútu til baka til Chamonix þar sem langþráð sturta bíður okkar og þar sem við getum skálað fyrir stórkostlegum árangri okkar og horft til fjallatindanna umhverfis þennan heillandi fjallabæ. Gert er ráð fyrir 10 tíma göngu, hækkun 1300m og lækkun 2450m.
Dagur 8. Chamonix - Genf - Keflavík
Þennan síðasta dag í Ölpunum er upplagt að skoða sig um í Chamonix, þessa snotra bæjar sem gjarnan hefur verið nefndur vagga fjallamennskunnar enda hafa ófáir menn og konur stigið sín mikilvægustu spor einmitt á götum bæjarins. Dagurinn er frjáls og það eina sem við þurfum að hafa í huga er að vera komin í tæka tíð til Genfar flugvallar fyrir kvöldflugið heim.