Leiðarlýsing:
Þátttakendur fá ferðalýsingu, kort og alla nauðsynlegar þjónustubeiðnir, því fyrirfram er búið að bóka gistingu, akstur og helstu máltíðir. Þátttakendur er ábyrgir fyrir eigin öryggi en fá neyðarsímanúmer sem hægt er að hringja í allan sólarhringinn. Þetta er trússuð ferð svo þátttakendur eru eingöngu með dagpoka með sér á göngu en annar farangur er fluttur á milli skála. Sá farangur má þó ekki vega meira en 12kg.
Dagur 1. Keflavík –Chamonix
Síðdegisflug til Genfar. Við komuna þangað er haldið í höfuðstað Alpanna, fjallabæjarins Chamonix þar sem við gistum þessa fyrstu nótt okkar á þægilegu 3* hóteli.
Dagur 2. Chamonix – Les Houches – Tricot skarð – Miage skálar – Contamines Montjoie.
Á þessum fyrsta göngudegi tökum við því rólega og getum verslað nesti og fleira áður en lagt er af stað upp í fjöllin. Fyrst tökum við strætó til Les Houches og síðan kláf upp í Bellevue. Þaðan er stutt ganga niður að Bionnassay jökli þar sem hengibrúin er vegvísir að áframhaldandi göngu upp í Tricot skarðið sem er í 2119 m hæð. Á leiðinni er um að gera að njóta mikilfenglegs útsýnisins til Aiguille de Bionassay og Dome de Gouter. Áður en leiðin liggur niður til Montjoie er líka upplagt að stoppa við Miage skálana og dást að þessum mögnuðu fjallasölum. Gist á gistiheimili í þorpinu Contamies Montjoie sem er vert að skoða betur. Ganga 6 klst. hækkun 550m, lækkun 1150 m.
Dagur 3. Contamines MontJoie – Notre Dame de la Gorge – Les Chapieux.
Gengið er upp MontJoie dalinn framhjá tilkomumikilli fjallalkirkju frá 15. öld. Áfram er haldið yfir brú frá tímum Rómverja og upp að Croix de la Bonhomme í 2454 m hæð. Hér er um að gera að njóta útsýnisins yfir mikilfenglega fjallasalina hærra förum við ekki í dag heldur höldum áfram niður að Les Chapieux þar sem gist er í skála eða á gistiheimili. Ganga 7 klst, hækkun 1300m, lækkun 800m.
ATH: Hægt er að fá skutl frá Contamines MontJoie bæ og upp að kirkjunni eða taka strætó.
Fyrir þá sem eru gönguglaðir er upplagt að ganga alla leið í Fours skarð og á Téte des Fours í 2728 m. þá bætast 1 ½ klst við heildargöngutímann.
Dagur 4. Les Chapieux – Seigne skarð – Chercrouit skarð.
Dagurinn hefst með ökuferð upp í Mottets fjallaskálann. Þar hefst gangan sem í dag liggur að ítölsku landamærunum í Seigne skarði í 2515m. Þar ættum við að stoppa og drekka í okkur mikilfenglegt útsýnið þar sem Brenva hlíð Mont Blanc er hvað tilkomumest. Við höldum svo niður í Veny dal áður en stígurinn hlykkjast upp á við að hreint ógleymanlegum stað, hugsanlega þeim eftirminnilegasta í allri ferðinni. Þetta er Checrouit skarðið þaðan sem ítalski hluti Mont Blanc fjallgarðsins blasir við með sjálfan Mont Blanc í forgrunni fjölda annarra mikilfenglegra tinda og jökultungna. Gist í skálanum í Checrouit skarði. Ganga 6 klst. hækkun 950m, lækkun 500m
Dagur 5. Checrouit skarð – Courmayeur – Arnuva – Grand Ferret skarð – Champex
Ganga niður til Courmayeur, hinnar ítölsku miðstöðvar Mont Blanc svæðisins (hægt að taka kláf niður). Hérna í þessum ítalska ys, getum við keypt okkur hádegisverð og eitthvað góðgæti til næstu daga áður en við tökum strætó eftir Ferret dal til Arnuva þar sem gangan hefst á nýjan leik og nú er stefnan tekin á Grand Ferret skarðið 2537m. útsýnið hérna er ekki amalegt, Jorasses, Augille Talefre og Mont Dolent ber við himin. Við lækkum okkur niður í Sviss að La Foully þorpi þar sem við tökum strætó til Chamex þorps þar sem við gistum í Nótt. Ganga 6 klst. hækkun 800m, lækkun 800m.
Dagur 6. Champex d´en Haut – Fenetre d´Arpette eða Bovine engi – Trient.
Í dag er hægt að velja á milli tveggja kosta, annars vegar um háheiðar Bovine engja þaðan sem njóta má útsýnar yfir Rónar dalinn og hins vegar erfiðari leið upp og yfir stórkostlegan Arpette gluggann 2637m. þaðan blasir mikilfenglegur Trient jökullinn við. Af báðum leiðum er magnað útsýni yfir Svissnesku Alpana og engin nauðsyn að taka ákvörðun um hvaða leið er valin fyrr en á sjálfum göngudeginum.
ganga um Bovine engin 5klst, hækkun 700m, lækkun 850m.
Ganga um Arpette gluggann 7 klst. hækkun 1000m, lækkun 1200m.
Dagur 7. Trient – Balme skarð – Les Frettes – Tré le Champ
Ganga frá Trient upp í Balme skarðið 2190m og yfir til Frakklands á nýjan leik. Ekki þarf að fjölyrða um útsýnina úr skarðinu, hún er mögnuð. Chamonix dalurinn og tindarnir umhverfis eru hreint ótrúleg sjón. Haldið áfram niður eftir Les Frettes hryggnum í þorpið Tré le Champ þar sem gist er á gistiheimili. Ganga ~5.5 klst. hækkun 900m, lækkun 800m.
Dagur 8. Tré le Champ – Blanc vötn – Chamonix – Genf – Keflavík.
Þessi síðasti dagur okkar í Ölpunum er ekki af veri endanum. Við höldum upp til hinna heimsfrægu Blanc vatna eftir hinum mikilfenglegu Suðursvölum þaðan sem útsýnið er ómótstæðilegt, við blasa tindar, dalir og jöklar. Hinar stórkostlegu nálar Aguille Verte og Chamonix nálarnar og daljöklarnir Tour, Argentiere og Íshafið. Á leið okkar í gegnum Aguille Rouges friðlandið er líklegt að fráar fjallagemsur svæðisins verði á vegi okkar áður en við höldum um furuskóg áfram niður til Chamonix. Nægur tími gefst til þess að skoða sig um í þessum heillandi fjallabæ áður en haldið er til Genfar flugvallar og í kvöldflugið heim. Ganga 6 klst. hækkun 900m, lækkun 1200m.