Í fótspor Þjóðhildar og Eiríks - IMG291
Á eigin vegum er ferðamáti sem hentar fólki sem kýs meiri sveigjanleika og treystir sér til þess að fylgja leiðarlýsingu og kortum á milli áfangastaða. Kjörið fyrir pör, vini eða fjölskylduna.
Á Suður Grænlandi er að finna fjölbreyttasta landslag Grænlands, jökulheima, heiðalönd, hátinda, firði og fjörur við fótskör stærsta jökuls heims, Grænlandsjökuls. Mikilfenglegir skriðjöklar ganga út úr meginjöklinum og kelfa í sjó fram. Ísjakar lóna á bláum haffleti fjarðanna og einstaka selur skýtur upp kolli. Ekki svo amalegt land að heimsækja eða setjast að í eins og þau Þjóðhildur og Eiríkur Rauði gerðu fyrir margt löngu. Nú eru í boði nokkrar ferðir á eigin vegum á þetta mikilfenglega svæði þar sem hægt er að velja um mismunandi þægindastig.
Brottfarir miðast við flug Flugfélags Íslands til Narsarsuaq og lágmark tvo ferðalanga.
Þetta er ferð á eigin vegum, sem þýðir að enginn leiðsögumaður stýrir ferð heldur er fólk sjálfrátt um ferðatilhögun innan vissra marka. Við komuna til Narsarsuaq er tekið á móti ferðafólki og það fær í hendur allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir komandi ferð. Svo fyllsta öryggis sé gætt fá ferðalangar neyðarnúmer sem hægt er að hringja í allan sólarhringinn komi eitthvað upp á.
Leiðarlýsing1/Leiðarlýsing2
Almennt: Suður Grænland er sá hluti Grænlands sem býður upp á hvað mesta fjölbreytni í landslagi og ekki þarf að koma á óvart að þar er um sumur grænt yfir að líta. Nafngift Eiríks Rauða á því fyllilega rétt á sér ólíkt því sem margir halda. Suður Grænland er einmitt staðurinn sem Eiríkur Rauði valdi sér til búsetu og fékk að auki landa sína til þess að flytja sig um set í hina grænu dali. Í dag er þó fátt sem minnir á veru norrænna manna á Suður Grænalandi, nema mosavaxnar rústir og grónar götur. Margir hafa velt vöngum yfir því hvað varð um hina norrænu íbúa S. Grænlands en af þeim fer engum sögum síðan á öndverðri 15. öld Flestir íbúar svæðisins í dag eru Inúítar, hinir raunverulegu frumbyggjar landsins í öndverðu. Talið er að loftslagsbreytingar um Kristsburð hafi orðið til þess að þeir fluttu þeir sig um set og því var landið mannlaust þegar Eiríkur Rauði kom á svæðið. Inúítar komu þó aftur til fyrirheitna landsins, reyndar um svipað leyti og norrænir menn og settust í fyrstu að norður í Thule áður en þeir fluttu sig suður eftir vesturströndinni. Fátt er þó vitað um samskipti norrænna manna og inúíta. Fuglalíf er áhugavert fyrir íslendinga, þar sem Fálkar og Hafernir eru algeng sjón. Einnig er grænlenska Sjóbleikjan undur fyrir veiðimenn, þar sem hún er stærri en systur hennar á Íslandi, og stundum er hún í svo miklu magni að ganga má þurrfóta yfir hylji.
Veðrátta: Sumarið er kjörinn tími til að heimsækja S. Grænland, veður eru mild og yfir hásumarið, í júlí og ágúst, má búast við allt að 20° C hita. Yfirleitt er lygnt nema þegar hnúkaþeyr er af jökli.
Verslun og þjónusta: Kaupfélög sem selja allan almennan varning er að finna í helstu byggðarkjörnum. Engin ástæða er til þess að óttast takmarkað vöruúrval og allir ættu að geta fundið eitthvað til þess að bíta og brenna þar. Hótel og mörg gistiheimili bjóða ferðalöngum upp á að kaupa tilbúinn mat, sem áhugafólk um erlenda matarmenningu ætti hiklaust að notfæra sér.
Símasamband: Víða er hægt að komast í gsm samband.
Vegabréf: Nauðsynlegt er að vera með gilt vegabréf meðferðis.
Leiðarlýsing1:
D1: Eftirmiðdagsflug frá Reykjavík til Narsarsuaq og eftir komu þangað haldið með báti til Brattahlíðar (Qassiarsuk), þar sem gist er næstu tvær nætur. Um að gera að nota það sem eftir lifir dags til þess að skoða sig um í Brattahlíð, þar sem Eiríkur Rauði og Þjóðhildur kona hans bjuggu um aldamótin 1000. Þar er m.a. að finna endurgerð af Þjóðhildarkirkju og safn sem áhugavert er að heimsækja.
D2: Ganga vestur yfir heiðina til Tasiusaq og/eða Nunatak, sem eru sveitabæir við Breiðafjörð. Á leiðinni er hægt að njóta heiðagróðurs og dýralífs, sérílagi fugla og fyrir veiði áhugafólk er upplagt að renna fyrir fisk í árósnum norðan við Tasiusaq enda líklegt að þar sé sjóbleikju að hafa. Landslagið við Breiðafjörð er tilkomumikið og ekki síst mikilfenglegt að fylgjast með hálfströnduðum ísjökum veltast um þegar lágsjávað er. Auðvelt er að velja aðra leið tilbaka til Brattahlíðar. Uþb 20 km ganga fram og tilbaka.
D3: Gengið suður til Inneruulalik þar sem gist er í bændagistingu. Þar er tækifæri til þess að kynnast fjárbúskap heimafólks og hægt er að kaupa sér kvöldmat hjá húsráðendum (ekki innifalið í verði). Ganga uþb 10 km.
Dagur 4: Dagurinn hefst með bátsferð yfir Eiríksfjörð til Itelleq. Þegar komið er í land er gengið eftir eiði, hinum svokallaða Kóngsvegi, til Garða (Igaliko) þar sem biskupssetur Norrænna manna var staðsett forðum. Garðar er snoturt lítið þorp, vel í sveit sett, á grösugum sléttum með hreint ótrúlegt útsýni á fjallstinda handan Einarsfjarðar. Gist á farfuglaheimili í 2 nætur.
D5: Í dag gefst færi á að kanna umhverfi Garða betur og ýmsir möguleikar í boði. Hægt er að ganga norðureftir upp á heiðina undir tilkomumiklum graníttindunum og njóta stórkostlegs útsýnisins yfir Qooroq fjörðinn sem alla jafna er fleytifullur af ís enda kelfir gríðarstór skriðjökull Grænlandsjökuls í botni fjarðarins. Þetta er ganga upp á 15 – 20 km fram og tilbaka. Þeir sem kjósa styttri göngu geta skoðað nærumhverfi Garða og gengið á Nuuluk og notið útsýnisins austur og suður yfir Einarsfjörðinn.
D6: Dagurinn hefst með bátsferð frá Itilleq til Narsarsuaq þar sem gist er á farfuglaheimilinu í tvær nætur. Upplagt er að skoða bæinn, höfnina og mannlífið og hægt er að fá innsýn í matarmenningu heimafólks af hlaðborði Hótels Narsarsuaq.
D7: Ganga upp að Narsarsuaq jöklinum þar sem loksins er hægt að komast nærri einum anga þessa gríðarstóra jökulhvels sem Grænlandsjökull er. Leiðin að jöklinum er auðveld og útsýnið yfir jökultunguna ógleymanlegt. Ganga uþb 16 km fram og tilbaka.
D8: Eftirmiðdagsflug til Reykjavíkur, heimkoma undir kvöld.
Í þesssari ferð er gert ráð fyrir að fólk beri allan sinn farangur á milli staða, í mörgum tilfellum er þó gist 2 nætur á sama stað sem gefur fólki kost á því að fara í dagsgöngur með léttan dagpoka. Gist er í bændagistingu eða á farfuglaheimilum og í öllum tilfellum er eldunaraðstaða og nauðsynleg áhöld til staðar. Búðir eru í Brattahlíð, Görðum og Narsarsuaq þar sem hægt er að fá allan almennan varning, mat og drykk. Kjósi fólk að snæða á bóndabænum Inneruulalik er nauðsynlegt að panta slíkt með fyrirvara.
Leiðarlýsing2
D1: Eftirmiðdagsflug frá Reykjavík til Narsarsuaq og eftir komu þangað haldið með báti til Inneruulalik, sveitabæjar þar sem gist er næstu tvær nætur. Hægt að nota það sem eftir lifir dags til þess að kynna sér búskaparhætti heimafólks. Fullt fæði.
D2: Ganga til Brattahlíðar (Qassiarsuk), þar sem Eiríkur Rauði bjó um aldamótin 1000. Þar er m.a. að finna endurgerð af Þjóðhildarkirkju og safn sem áhugavert er að heimsækja, leiðsögn og aðgangseyrir að safninu er innifalið í verði. Gangan fram og tilbaka er uþb 18 km en hægt er að fá báta eða bílaskutl til baka sem er þó ekki innifalið í verði. Fullt fæði
D3: Dagurinn hefst með bátsferð yfir Eiríksfjörð til Itelleq. Þegar komið er í land er gengið eftir eiði, hinum svokallaða Kóngsvegi, til Garða (Igaliko) þar sem biskupssetur Norrænna manna var staðsett forðum. Garðar er snoturt lítið þorp, vel í sveit sett, á grösugum sléttum með hreint ótrúlegt útsýni á fjallstinda handan Einarsfjarðar. Gist á farfuglaheimili í 2 nætur, fullt fæði.
D4: Í dag gefst færi á að kanna umhverfi Garða betur og ýmsir möguleikar í boði. Hægt er að ganga norðureftir upp á heiðina undir tilkomumiklum graníttindunum og njóta stórkostlegs útsýnisins yfir Qooroq fjörðinn sem alla jafna er fleytifullur af ís enda kelfir gríðarstór skriðjökull Grænlandsjökuls í botni fjarðarins. Þetta er ganga upp á 15 – 20 km fram og tilbaka. Þeir sem kjósa styttri göngu geta skoðað nærumhverfi Garða og gengið á Nuuluk og notið útsýnisins austur og suður yfir Einarsfjörðinn. Fullt fæði
D5: Dagurinn hefst með bátsferð yfir Einarsfjörð í hið svokallaða Vatnahverfi þar sem gist er í bændagistingu í 2 nætur. Annað hvort er gist á bænum Saqqaa eða Qanisartut sem hvoru tveggja eru fjárbú. Fullt fæði.
D6: Í dag er tækifæri til þess að skoða heillandi náttúru Vatnahverfisins nánar. Svæðið erbæði grösugt og búsældarlegt og dregur nafn sitt af vatnafjöld sem þar er að finna. Ýmsir möguleikar eru í boði, hægt er að ganga á fjall eða eiga þægilegan dag við vatn eða sjó. Fullt fæði
D7: Dagurinn hefst með bátsferð frá Qanisartut til bæjarins Qaqortoq sem að margra mati er einhver fallegasti bær Grænlands. Vafalaust væri hægt að eyða miklu lengri tíma en einum eftirmiðdegi í það að skoða bæinn og umhverfið og hægt er að kynna sér matarmenningu heimafólks enda fjölda veitingastaða að finna. Athugið að í dag er eingöngu morgunverður innifalinn og gefst kostur á því að prófa rétti heimafólks.
D8: Bátsferð til Narsarsuaq, siglt inn eftir Eiríksfirði og hægt að njóta mikilfenglegs útsýnis á graníttindana beggja megin um leið og hugurinn reikar um göngur og upplifanir undangeninna daga. Eftirmiðdagsflug til Reykjavíkur, heimkoma undir kvöld
Í þessari ferð er allur farangur trússaður svo göngurnar ættu að vera þægilegar fyrir flesta. Gist er í bændagistingu eða á farfuglaheimilum, ýmist í uppbúnu rúmi eða svefnpokaplássi og í öllum tilfellum er um fullt fæði að ræða. Í flestum tilfellum er gist 2 nætur á sama stað. Búðir eru í Brattahlíð, Görðum, Qaqortoq og Narsarsuaq þar sem hægt er að fá allan almennan varning, mat og drykk.
Innifalið : Flug Reykjavík - Narsarsuaq - Reykjavík, ferðagögn og leiðarlýsing
Hafa í huga : Hópstærð að lágmarki 2

English
Íslenska

















