Leiðarlýsing:
D1: Keflavík – Collioure
Komið til þessa sjarmerandi bæjar í eftirmiðdaginn. Collioure er einstaklega vel í sveit settur, við rætur Pýreneafjallanna og strendur Miðjarðarhafsins. Bærinn var á tímabili heimili listamanna á borð við Matisse og ber þess enn þá merki. Þar er margt að sjá, litfögur hús, kastala frá 18. öld, kirkjubyggingar eða einfaldlega njóta heillandi fegurðar hafsins. Upplagt að rölta út í kvöldið og skoða sig um. Gist á hóteli í Collioure.
D2: Collioure – Banyuls
Í dag hefst gangan og leiðin liggur um ræktarlönd heimafólks. Framhjá Madeloc turninum sem upplagt er að ganga upp í og njóta útsýnisins áður en lækkunin niður til Banyuls hefst á milli hlaðinna veggja sem afmarka og skýla vínökrunum, þar sem sirah og aðrar grenache þrúgur þroskast. En það er fleira en þrúgur að finna í Banyuls og nágrenni, þorpið var heimili myndhöggvarans Maillol og mörg verka hans er að finna í þorpinu. Gist á hóteli í Banyuls:
Létta leiðin: 4 stunda ganga, hækkun 500m og lækkun 500m.
Lengri leiðin: 5 stunda ganga, hækkun 700m og lækkun 700m
D3: Banyuls – Cerbère
Við höldum áfram eftir krókaleiðum og kindagötum og drekkum í okkur mikilfenglegt útsýnið yfir sjálft Miðjarðarhafið. Við Querroig rústirnar, þar sem varðmenn stóðu vaktina á miðöldum er ágætt að staldra við áður en lengra er haldið. Leiðin liggur svo um heillandi og villt landslag, náttúruverndarsvæðisins sem kennt er við Cerbère, þorpið sem leynist við enda göngunnar og gæti verið á heimsenda. Gist á hóteli í Cerbére
Létta leiðin: 4 stunda ganga, hækkun 450m og lækkun 450m
Lengri leiðin: 5 stunda ganga, hækkun 700m og lækkun 700m
D4 : Cerbère – Llança
Dagleiðin í dag liggur nær sjónum, gróðurinn er lægri og ilmar á allt annan hátt. Án efa er hægt að staldra við á ströndinni í Garbet og jafnvel að dýfa sér í sjóinn sem alla jafna er spegilsléttur og heillandi enda umgjörðin stórkostleg bæði í litafegurð og landslagi. Leiðin liggur svo eftir ströndinni allt þar til við komum að höfninni í Llança. Gist á hóteli í Llança.
Ganga 4 stundir, hækkun 500m og lækkun 500m
D5: Llança – Port de la Selva
Í dag hækkum við okkur eftir ævafornum og fallegum klausturstíg að áhrifamikilli kirkju heilagrar Elenu og klaustri heilags föður af Roda sem er yfir þúsund ára gamalt og talið er að þar séu hýstar helgir dómar Péturs postula. Eftir að hafa skoðað okkur um í klaustrinu heldur leiðin áfram og nú lækkum við okkur aftur niður að strönd. Hallinn er þægilegur og útsýnið yfir Port de Selva flóann lætur engan ósnortinn. Gist á hóteli í Port de la Selva.
Létta leiðin: 4 stunda ganga, hækkun 550m og lækkun 550m.
Lengri leiðin: 5 stunda ganga, hækkun 700m og lækkun 700m.
D6: Port de la Selva – Cadaqués.
Leiðin í dag liggur um hrjóstrugt land Kross höfða (Cabo de Creus). Höfðinn er náttúrugarður og stígakerfi hans tiltölulega ungt, en flestir stígarnir sem við fetum voru opnaðir fyrir rúmlega 10 árum. áður en langt um líður erum við komin í land Salvador Dali, sem leiðir okkur beint að húsi þessa mikislvirta málara í Port Lligat og áfram að hinu heillandi fiskimannaþorpi Cadaqués. Gist á hóteli í Cadaqués.
Létta leiðin: 5 stunda ganga, hækun 500m og lækkun 500m.
Lengri leiðin: 7 stunda ganga, hækkun 500m og lækkun 500m.
D7: Cadaqués
Í dag tökum við því rólega og leiðum hugann að því sem undanfarnir dagar hafa borið í skauti sér. Sem þýðir þó ekki að við skoðum okkur ekki aðeins um í Cadaqués og nágrenni. Hægt er að kynna sér töfraeyjuna Oliguera og þær stórkostlegu klettamyndanir sem þar er að finna, sérílagi hinn þekkta klett, Cucurucuc, sem er tígulegur þar sem hann speglast í túrkisbláu vatni flóans. Gist á hóteli í Cadaqués.
Ganga 1:30, hækkun 100m og lækkun 100m.
D8: Cadaqués – Barcelona – Keflavík
tími til kominn að pakka saman og halda heim á leið. Fyrir þau sem vilja skoða safn Salvador Dali í borginni Figueres er best að taka daginn snemma fyrir eftirmiðdagsflug heim til Íslands.