Sæluvika á Síðuafrétti - IMG32

Hápunktar

  • Lakagígar
  • Hraunflákar
  • Mögnuð saga
Verð frá: 179.000 ISK

Sæluferð um eitt magnaðasta gossvæði Íslands - Eldhraun og Lakagíga

Árið 1783 hófst í Lakagígum eitt stærsta gos Íslandssögunnar, Skaftáreldar. Skaftáreldar stóðu í hálft ár og gosmagnið sem úr iðrum jarðar kom er eitt hið mesta úr einu gosi, ekki aðeins á Íslandi heldur á heimsvísu. Hraunið sem rann í Skaftáreldum, Eldhraun, þekur 565 ferkílómetra og teygir sig niður af Síðuafréttinum austan og vestan við hina raunverulegu Síðu. Þó gosið og eftirstöðvar þess hafi á sínum tíma verið stórkostlegar náttúruhamfarir sem settu allt daglegt líf úr skorðum og ollu umtalsverðum hörmungum á landinu er fátt sem bendir til þeirrar staðreyndar þegar ferðalangur stendur á tindi Laka og horfir yfir gígaröðina og hraunbreiðuna. Þetta er trúlega einn af mögnuðustu útsýnisstöðum Íslands og upplifunin er margslungin þegar hrópandi andstæður landslagsins blasa við. Í þeim er bæði mýkt og harka, mosi og auðn. 
Þó undarlegt megi virðast eru þetta ekki fjölfarnar slóðir og því umlykur öræfakyrrðin okkur á þessum magnþrungna stað. Hérna gefst kjörið tækifæri til þess að njóta öræfanna í öllu sínu veldi, opna sál sína fyrir orkunni og hverfa frá amstri daganna.

Dagleiðir: 5 - 6 klst.
Heildargönguvegalengd: 80 km.
Gönguhæð: 150 - 600 m.
Mesta hækkun: 200m.

Búnaðarlisti


Innifalið : Leiðsögn, matur í 7 daga (hvorki morgunverður á fyrsta degi né kvöldverður á síðasta degi) gisting 2 nætur á hóteli og 4 nætur í fjallaskálum, eldunar og mataráhöld, flutningur á farangri, ferðir frá Reykjavík að Kirkjubæjarklaustir og frá Kirkjubæjarklaustri til Reykjavíkur.

Hafa í huga : Gist er í fjallaskálum í óbyggðunum en fyrstu og síðustu nótt eyðum við á hóteli á Kirkjubæjarklaustri. Þar snæðum við kvöldverð á fyrsta og síðasta degi ferðarinnar.
Upphafsstaður : BSÍ Reykjavík.