Dagur 1: Ferðin hefst í Nýjadal við Tungnafellsjökul og gengið upp Jökuldal hinn Nýja. Þegar líparítsvæði Vonarskarðs virðist innan seilingar er tjaldað í nágrenni við snotur hverasvæði. Tjald.
Dagur 2: Vonarskarð er fornt örnefni á þessum slóðum, þó ekki sé vitað hvort það hafi upprunalega verið haft yfir þetta skarð á milli Tungnafellsjökuls og Köldukvíslarjökuls. Skarðið er litskrúðugt með afbrigðum og vona ætti í lengstu lög að skyggni gefi færi á að sjá dýrðina. Gengið er suður skarðið að Köldukvíslarjökli og síðan áfram meðfram honum. Vaðið og reynt að finna snjóbrýr og jökulspangir yfir fyrstu kvíslarnar. Tjaldað við jökulsporðinn.
Dagur 3: Megnið af deginum fer í að ganga yfir sporð Köldukvíslarjökuls. Handan hans bíður áin Sveðja, einn af erfiðari farartálmum ferðarinnar, sem vaða þarf og getur reynst snúið síðla dags. Tjaldað í námunda við Bryðju, í dálítilli gígskál sem veitir gott skjól fyrir hugsanlegum sviptivindum af jökli. Tjald.
Dagur 4: Leiðin liggur með Hágönguhraunum og snotrum gígaröðum í Tröllahrauni niður að Tungnaárbotnum, síðan með Jökulgrindum og Tungnaárjökli að Jökulheimum, eina "byggða" bólinu í ferðinni. Langur dagur um eina hrjóstrugustu eyðimörk landsins. Skáli.
Dagur 5: Tungnaá er vaðin, sem útheimtir bæði sérstaka tækni og nokkurn tíma. Stefnan sett á milli jökuls og Grænafjallgarðs/Tungnaárfjalla. Allt í einu stöndum við frammi fyrir einni af óviðjafnanlegri perlu íslenskrar náttúru; Langasjó með Fögrufjöll/Skaftárfjöll sér að baki. Gengið er fyrir norðurenda vatnsins og síðan um enda fjallgarðsins að Útfalli sem þarf að vaða áður en tjaldað er í Grasveri. Tjald.
Dagur 6: Haldið suður Fögrufjöll með Langasjó. Ótal gígar og vötn gefa fjallgarðinum skemmtileg form og andstæður í litum halda augum við efnið. Í lok dags er gengið hjá Sveinstindi og haldið niður með Skaftá. Tjaldað er við Hvanngil, í grennd við Uxatinda og hina sérstöku Kamba handan árinnar. Tjald.
Dagur 7: Síðasti leggur ferðarinnar er um Uxatinda og á barmi Skaftárgljúfursins sunnan þeirra. Landslagið líkist æ meira völundarhúsi, gröfnu í þykk gjóskulög upprunnin úr Eldgjá þessari gríðarlegu gossprungu sem gengið er niður með síðasta hluta ferðarinnar í Lambaskarðshóla. Þar ætti að vera hægt að ná síðdegisrútunni sem fer á Klaustur, nú eða tjalda og halda upp á ferðarlok.