Lónsöræfi - IMG49

Hápunktar

  • Mikilfenglegt landslag við jaðar Vatnajökuls
Verð frá: 129.000 ISK

Ganga um ósnortin öræfi við jaðar Vatnajökuls á slóðum hreindýra og heiðafugla

- Þægileg bakpokaferð við jaðar Vatnajökuls


Svæðið norðan og austan við Vatnajökul er kjörið gönguland og sameinar heillandi náttúrufegurð öræfakyrrðarinnar. Hér er á ferð heillandi ganga um fáfarnar slóðir við jaðar Vatnajökuls þar sem auðvelt er að láta öræfakyrrð og ótrúlegt náttúrufar hefja sig í æðra veldi. Gengið er um gróið land og stórgrýtisurðir þar sem hægt er að njóta fossafalla, fjallavatna, smáblóma og jafnvel hreindýra. Allar nætur er gist í skálum þar sem aðstaða er með því besta á hálendinu, engin þörf á því að bera með sér svefnpoka!

Dagleiðir: 6-8 klst
Heildar vegalengd:
50 kílómetrar
Gönguhæð:
100 - 800 m.y.s
Mesta hækkun:
250 m

Búnaðarlisti


Innifalið : Flug Reykjavík - Egilsstaðir, og Hornafjörður - Reykjavík, leiðsögn, matur í gönguferðinni (fyrir utan morgunmat fyrsta daginn og kvöldmat síðasta daginn), akstur frá Egilsstöðum suður á Eyjabakka og frá göngubrú til Hafnar í Hornafirði.
Hafa í huga : Hægt er að kaupa ferðina án flugs og hefst hún þá á Egilsstöðum og endar á Hornafirði. Verð lækkar til samræmis í 82.900 krónur
Upphafsstaður : Reykjavíkurflugvöllur