Laki - Skaftafell - IMG42
Alvöru bakpokaferð um upplönd Síðu og Hverfis
Alvöru bakpokaferð um eitt stórkostlegasta svæði landsins þar sem ferðalangur skynjar vel andstæður elds og ísa og hvernig þessi náttúrufyrirbæri hafa tekist á í mótun landsins frá örófi alda.
Stórbrotið og síbreytilegt landslag er rammi þessarar bakpokaferðar. Drjúgur spotti er gengin á jökli til þess að krækja fyrir tvö af stærri jökulfljótum landsins. Gengið er frá Laka um Eldborgirnar, yfir Hverfisfljót og Djúpá með og á jaðri Síðujökuls, um Beinadal og Núpsárhraun, og síðan niður með Núpsárgljúfrum. Haldið áfram yfir í tröllsleg fjöll í baklandi þjóðgarðsins í Skaftafelli. Gengið er upp með Núpsárgljúfrum upp að Grænalóni, aðþrengdu jökulstífluðu vatni milli Eggja og Grænafjalls. Ein mesta íselfur landsins, Skeiðarárjökull, er þveruð á einum degi og í dagslok er gist á einhverjum stórkostlegasta tjaldstað sem fyrir finnst. Þessi ferð býður upp á ólíka þætti íslensks náttúrufars og skilur eftir upplifanir sem endast.
Ein flottasta leið Íslenskra Fjallaleiðsögumanna frá upphafi. Ferð sem sameinar ólíka þætti íslenskrar náttúru og býður upp á fjölbreytt gönguland og ,agnaða upplifun.
Heildar gönguvegalengd: 125 km.
Göngutími á dag: 6-9 hours.
Hæð: 200-1100 m.
Mesta hækkun: 450 m.

Innifalið : Leiðsögn, akstur frá Kirkjubæjarklaustri í Laka, tjöld, matur, eldunaráhöld og annar nauðsynlegur jöklabúnaður.
Hafa í huga : Ferðin hefst á Kirkjubæjarklaustri og endar í Skaftafelli, því er nauðsynlegt að gera ráð fyrir gistingu á eða við Kirkjubæjarklaustur kvöldið fyrir ferðina.
Upphafsstaður : Kirkjubæjarklaustur.

English
Íslenska


















