Eldgjá - Vík - IMG48
- Móbergsfjöllin í jaðri Mýrdalsjökuls eiga sér varla hliðstæðu í íslenskri náttúru. Jafnvel kunnar perlur eins og Þórsmörk standast vart samanburð við þetta lítt þekkta, iðagræna móbergslandslag.
-Fimm daga bakpokaferð
Fimmti og síðasti hluti göngunnar Frá strönd til strandar sem hefst í Ásbyrgi og lýkur í Vík í Mýrdal.
Móbergsfjöllin í jaðri Mýrdalsjökuls eiga sér varla hliðstæðu í íslenskri náttúru. Jafnvel kunnar perlur eins og Þórsmörk standast vart samanburð við þetta lítt þekkta, iðagræna móbergslandslag. Suðurhluta Eldgjár er fylgt alla leið að Mýrdalsjökli. Frá hinu mikilúðlega Öldufelli er jaðri Mýrdalsjökuls fylgt að Austastahrygg og Ólafshaus, lítt þekktu fjallasvæði í faðmi jökulsins sundurskornu af gullfallegum giljum og gljúfrum. Farið er á jökli fyrir stærstu jökulárnar yfir að Sandfelli, en lengsti leggurinn á jökli er sjálfur Höfðabrekkujökullinn, um 7 km breiður. Landgangan af jökli er í mögnuðum fjallasal þar sem brattir skriðjöklar steypa sér niður af hájöklinum og renna á milli Skers og Huldufjalla sem teygja toppa sína upp úr jökulísnum.Gengið um Þakgil, Höfðabrekkuheiði og Kerlingardal, og endað á sendinni strönd Víkur.
Dagleiðir: 6-9 klst.
Heildar vegalengd: 76 kílómetrar
Hæð: 50-600 m.y.s.
Mesta hækkun: 300 m

Innifalið : Leiðsögn, matur í fimm daga (fyrir utan morgunmat fyrsta daginn og kvöldmat síðasta daginn), tjöld, eldunar- og mataráhöld.
Hafa í huga : Ferðin endar í Vík í Mýrdal.
Upphafsstaður : Eldgjá/Hólaskjól.

English
Íslenska

















