Askja - Nýidalur - IMG46

Hápunktar

  • Askja
  • Vatnajökull
  • Gæsavötn
  • Jökulheimar
  • Nýidalur
Verð frá: 113.900 ISK

- Sex daga bakpokaferð um heillandi auðnina norðan Vatnajökuls þar sem andstæður íss og elds og afleiðingar þessara frumkrafta eru leiðarstefið

-Sex daga bakpokaferð.
 Þriðji hluti ferðarinnar Strönd til strandar sem hefst í Ásbyrgi og lýkur í Vík í Mýrdal.

Sex daga bakpokaferð um heillandi auðnina norðan Vatnajökuls þar sem andstæður íss og elds og afleiðingar þessara frumkrafta eru leiðarstefið: svartir sandar, sviðnir engireitir og jökulhrammurinn sem teygir sig niður á sandinn. Ólíklegt annað en að þessar andstæður veki ferðafólki óttablandna virðingu fyrir óræðum náttúruöflunum og finni til smæðar sinnar andspænis þeim.

Dagleiðir: 5-11 klst.
Heildar vegalengd:  95 km.
Gönguhæð:  600-1200 m h.y.s.
Mesta hækkun:  200 m.

Búnaðarlisti


Innifalið : Leiðsögn, matur í fimm daga (fyrir utani morgunmat fyrsta daginn og kvöldmat síðasta daginn), tjöld, tjaldstæðisgjöld, eldunar- og mataráhöld.
Hafa í huga : Ferðin endar í Nýjadal.
Upphafsstaður : Askja/Drekagil.