Dagur 1: Egilsstaðir – Stórurð – Borgarfjörður eystri
Akstur frá Egilsstöðum að Vatnsskarði þar sem við reimum skóna og leggjum af stað að fyrsta undrastað þessarar ferðar, Stórurð. Stórurð er einstæð náttúruperla á þröskuldi mikilfenglegra Dyrfjallanna. Við gefum okkur góðan tíma til þess að skoða okkur um í Stórurðinni áður en við höldum undir hamra Fjallanna yfir til Borgarfjarðar eystri þar sem við gistum þessa fyrstu nótt.
Göngutími: 6 – 8 klst: Hækkun ~600m, lækkun ~850m.
Dagur 2: Borgarfjörður eystri – Brúnavík – Breiðavík
Frá þessu skemmtilega þorpi þar sem álfar eiga veglegan samastað höldum við til Breiðuvíkur. Fyrsti spölurinn er eftir þjóðveginum en fyrr en varir beygjum við inn í brekkuna og höldum eftir aldagömlum kindagötum yfir í Brúnavík þar sem gott er að nesta sig í fjörunni. Úr Brúnavíkinni höldum við inn dalinn og upp í Súluskarð þar sem litríkt líparítið gleður augað. Úr Súluskarði er um nokkra kosti að velja ef halda á í Breiðuvík og aldrei að vita nema að færi gefist til þess að ganga á sjálfan Gletting. Það veltur þó allt á veðri og aðstæðum.
Göngutími: 7 – 9 klst. Hækkun 400m/lækkun 400m.
Dagur 3: Breiðavík – Húsavík
Við kveðjum litskrúðuga Breiðavíkina og höldum um Leirfjall niður í Gunnhildardal og í sjálfa Húsavíkina. Ef veður og aðstæður leyfa er aldrei að vita nema við göngum á Hvítserkinn sem teljast verður eitt lit- og formfegursta fjall landsins. Skálinn í Húsavík er staðsettur undir Neshálsinum og þaðan er upplagt að halda í kvöldgöngu niður að gamla bæjarstæðinu við fjörukambinn þar sem snotra kirkju er að finna. Húsavík var síðasti bærinn sem fór í eyði á þessum slóðum og kannski skrýtið til þess að hugsa að þarna bjó fólk til ársins 1974.
Göngutími: 5 – 7 klst. Hækkun ~600m/lækkun ~600m.
Dagur 4: Húsavík – Loðmundarfjörður
Við byrjum daginn með því að ganga upp á Neshálsinn og ofan í Loðmundarfjörðinn sem þótti mikil matarkista fyrr á öldum, þar bjuggu rúmlega 100 manns um aldamótin 1900 enda stutt á gjöful fiskimið og búsældarlegt í dalnum upp af firðinum. Við höldum um berghlaupið Loðmundarskriður sem eru merkilegt náttúrufyrirbæri áður en staðar er numið við kirkjustaðinn Klyppstað þar sem við gistum í glæsilegum skála þessa síðustu nótt ferðarinnar.
Göngutími: 5 – 7 klst. Hækkun 600m/lækkun 600m.
Dagur 5: Loðmundarfjörður – Seyðisfjörður – Egilsstaðir
Þessi síðasti göngudagur liggur um Hjálmárdalsheiðina, gömlu þjóðleiðina yfir til Seyðisfjarðar. Þegar upp á háheiðina er komið koma fjallatindar suðurfjarðanna í ljós og sjálfur Seyðisfjörðurinn sem er ansi frábrugðinn litlu fjörðunum og víkunum sem við höfum gengið um síðustu daga, langur þröngur og með sín tilkomumiklu fjöll að sunnanverðu. Um að gera að njóta útsýnisins áður en haldið er niður á við. þegar komið er niður á þjóðveg er þessi ganga að baki og við getum sest í rútu sem ekur okkur til Egilsstaða.
Göngutími: 5 – 7 klst. Hækkun ~600m/lækkun ~600m.