Tilboð: Hvannadalshnjúkur með gistingu - IMG25G

Hápunktar

  • Ómótstæðilegt útsýni
  • Takmarkaður fjöldi á leiðsögumann/konu
  • Gisting á Hótel Skaftafelli
  • Hvannadalshnjúkur
Verð frá: 42.200 ISK

Í samstarfi við Hótel Skaftafell bjóða Íslenskir fjallaleiðsögumenn upp á sérstakt verð á vinsælustu fjallgöngu okkar. Hvannadalshnjúk ur með gistingu og kvöldverði.

Hvannadalshnjúkur og hótelgisting í Skaftafelli

Gönguferð á hæsta tind landsins. Hvannadalshnjúkur er fremur auðveldur tæknilega en tekur drjúgt af úthaldinu. Ferð á Hvannadalshnúk er ógleymanleg upplifun og allmargir fara ár hvert.Hvannadalshnjúkur - Hótel Skaftafell

Lagt er af stað snemma morguns, oftast um 5 og því er heppilegast að gista í Skaftafelli eða nágrenni. Dagleiðin er löng og ströng og því ekki mælt með því að aka langar leiðir að göngu lokinni. Því er kjörið að gista á Hótel Skaftafelli í Freysnesi, bæði fyrir og eftir gönguna og endurhlaða orkubirgðirnar á veitingastað hótelsins. Kynntu þér einstakt tilboð. Hvannadalshnjúkur, gisting og matur!

Flokkun: Krefjandi, meira en 2000 m hækkun og ~25 km dagleið.
Áætlaður tími: 10-15 klst ganga
Fjöldi: Tveir til átta þátttakendur með hverjum leiðsögumanni. 

Til þess að bóka þessa Hvannadalshnjúk með gistingu hafið þá samband við skrifstofu í fjallaleidsogumenn@fjallaleidsogumenn.is eða í síma 587-9999.

Bókunarskilmálar - Búnaðarlisti


Lágmarksaldur : 16 yrs.
Innifalið : Allur sérhæfður útbúnaður til jöklaferða. Gisting í tvær nætur á Hótel Skaftafelli, ein nótt fyrir göngu og ein eftir göngu, tveir morgunverðir og þriggja rétta kvöldverður að göngu lokinni. Verðið miðast við að gist sé í tveggja manna herbergjum.
Ekki innifalið : Ferðir í og frá Öræfum, nesti, persónulegur búnaður
Hafa í huga : Tilboðið miðast við tvo sem bóka saman og gista í tveggja manna herbergjum.
Lengd : 10-15 klst. ganga
Upphafsstaður : Bækistöð Íslenskra fjallaleiðsögumanna við þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins í Skaftafelli.