Toppaðu með 66°Norður og Fjallaleiðsögumönnum - HRH092

Hápunktar

  • Heildstæð göngudagskrá
  • Fagmennska í leiðsögn
  • Fræðsla ferðir uppákomur
Verð frá: 39.900 ISK

Nú er tækifærið að toppa Hnúkinn með 66° Norður

 

og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum

Hefur þig alltaf langað á hæsta tind landsins?
Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum fer aftur af stað í febrúar 2010 og lýkur með göngu á Hvannadalshnúk í byrjun júní 2010.

66° Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða enn og aftur upp á heildstæða og raunhæfa æfingaáætlun sem gerir flestum kleift að standa á hæsta tindi Íslands - Hvannadalshnúki (2110 m).

Dagskráin byggist á göngum og fræðslu um hina ýmsu þætti sem hafa verður í huga þegar tekist er á við fjöll og firnindi. Æfingaáætlunin er sérstaklega hugsuð með það fyrir augum að sem flestir hafi tök á því að vera með. Þetta er í þriðja sinn sem dagskrá sem þessi er í boði og verður að segja að fyrri dagskrár hafa sannað ágæti sitt og skilað ánægðum fjallagörpum og gerplum.

Heildarverð fyrir æfingadagskrána er aðeins 39.900 krónur sem tekur til allra 14 æfingagönguferðanna auk Hnúksgöngunnar og fræðslukvölda. 

Yfirleiðsögumenn verða Leifur Örn Svavarsson og Einar Torfi Finnsson.

Myndir frá dagskránni 2008 og Myndir frá dagskránni 2009

Allir þeir sem taka þátt í dagskránni eiga kost á eftirfarandi fríðindum:

  • • Fræðslukvöld um göngutækni, fatnað, næringu og jöklabúnað
  • • Sérkjör hjá 66°Norður
  • • Mánaðarkort í Sporthúsinu
  • • Netklúbbsverð á öll námskeið ÍFLM árið 2010
  • • Jöklaganga í Skaftafelli eða á Sólheimajökli, boðsferð fyrir tvo, sumarið 2010
  • • Ferðaávísun að upphæð 5.000 kr sem gildir í allar lengri ferðir Fjallaleiðsögumanna árið 2010
  • • 20% afsláttur af sól- og skíðagleraugum í gleraugnaversluninni Gleraugnasalan 65, gildir til 5. júní 2010

Umsagnir viðskiptavina

"Mig langar bara að þakka kærlega fyrir mig og þessi ferð var alveg stórkostleg og ekkert sem toppar hana.  Veðrið var nátturulega truflað.  Svo langar mig að benda ykkur á að hann Haukur fararstjórinn okkar er sá besti.  Hvernig hann tæklaði jökulinn á göngunni upp var alveg frábært.  Það var umtalað í hópnum okkar hvað hann gerði þetta vel.  Á þessari löngu göngu varð maður varla þreyttu og alltaf gefinn tími til að stoppa og njóta fegurðinnar, samt vorum við ekki nema rúma 12 tíma að klára þetta.  Það var engin ofreynsla svo allir nutu ferðarinnar mjög vel og komu glaðir niður aftur.  Haukur er toppmaður og frábær fararstjóri.
Enn og aftur takk kærlega fyrir mig."

Hilmar Jacobsen

"Mig langar til að senda ykkur þennan póst þar sem umræðan í hópnum mínum var það jákvæð í garð leiðsögumannsins okkar hans Hauks.
Þessi hópur er búinn að vera að mestu saman í undirbúningnum í vetur, og oft lent með Hauk sem guide hjá okkur.
Í Hnúksferðinni um síðustu helgi stóð hann sig frábærlega, alltaf yfirvegaður og jákvæður og með góða taktík í göngunni. Hann kom fram sem mjög reyndur og traustur leiðsögumaður og gott að vita af honum fremst í línunni okkar og lét vel vita af öllum sprungum og öðru sem þurfti að hafa gætur á.
Þeir sem lenda í hóp hjá honum í framtíðinni eru í öruggum höndum.
Takk fyrir okkur
"

Felix

"Sæll Ívar
Ferðin á Hrútsfjallstinda um helgina var algjörlega frábær. Leiðsögumaðurinn okkar Guðmundur Arnar stóð sig mjög vel. Þetta er upplifun sem enginn okkar mun gleyma í bráð.

Takk fyrir okkur
kv"

Ármann

"Sæll Leifur,
Langar að þakka þér fyrir frábæra leiðsögn, við vissum að ef einhver kæmi okkur á
toppinn þá væri það þú ;)
Mig langar líka að þakka fyrir þetta frábæra prógram sem þið eruð með, þetta er búið að vera alveg frábær upplifun.  Við vorum einmitt að tala um að þó svo að við kæmumst einhverra hluta ekki á Hvannadalshnjúk þá er leiðin að takmarkinu búin að vera svo frábær að hún hefði líka alveg verið þess virði ein og sér.  Þó svo að sjálfsögðu hefði maður orðið vonsvikinn ef maður hefði ekki komist, sérstaklega núna eftir að hafa upplifað það.  Allavega líður manni vel eftir  "sigurinn", engar harðsperrur, engar blöðrur og bara yndislegar minningar.
Þið eruð með virkilega faglega og góða leiðsögumenn, hressa og skemmtilega auk þess að kenna manni helling í leiðinni.  Held ég eigi aldrei eftir að gleyma leikþætti Önnu Láru á Snæfellsjökli.
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn "

Guðrún Sigríður

Skilmálar
Öllum er heimil þátttaka í dagskrá ÍFLM og 66°Norður
Börn undir 16 ára aldri eru á ábyrgð foreldra sinna eða forráðamanna í öllum ferðum á vegum ÍFLM.
Hin almenna regla er að börn yngri en 12 ára fá ekki að fara í ferðir á jöklana; á Snæfellsjökul og Hvannadalshnúk.
Eftir ferð á Vífilsfellið 31. mars næstkomandi meta leiðsögumenn ÍFLM hæfni barna 12-15 ára og skera úr um hvort þau fá að taka þátt í áframhaldandi dagskrá. Skilyrði er að þau börn sem metin eru hafi mætt í alla dagskrárliðina.
Frítt er fyrir börn yngri en 12 ára
12 – 15 ára börn greiða eingöngu 19.950 kr.

Annar valkostur
Þeir sem ekki telja sig þurfa á þessari þéttu æfingadagskrá að halda en vilja slást í hópinn á Hvannadalshnúk býðst að koma á tvö fjöll og Hvannadalshnjúk fyrir 36.900 krónur. Að sjálfsögðu er svo hægt að slást í hópinn á Hvannadalshnúk á almennu verði. Slíkt er ekki bókanlegt á netinu, vinsamlegast hafið samband við Jón Gauta með tölvupósti eða í síma 511 4969.

Styrkir til líkamsræktar
Athugið að ýmis stéttarfélög veita félagsmönnum sínum styrki til líkamsræktar sem þessarar. Sjá til dæmis upplýsingar um Varasjóð VR.

Verð fyrir börn : 19.950 ISK
Innifalið : Leiðsögn í ferðum Allur nauðsynlegur jökla og öryggisbúnaður Fræðslukvöld um fatnað, næringu og fjallamennsku
Upphafsstaður : Alla jafna er ekið frá verslun 66°Norður í Faxafeni og reynt eftir föngum að sameinast í bíla.