Fjallkonur Íslands 2010 - HRH091

Hápunktar

  • Kvennahópur
  • Kvennaleiðsögn
Verð frá: 53.000 ISK

FJALLKONUR ÍSLANDS

stöndum saman á Hvannadalshnúki á

Kvenréttindadaginn - 19. júní 2010

Innifalið í verði er vænn fríðindapakki, fyrirtaks leiðsögn vel þjálfaðra leiðsögukvenna og frábær félagsskapur freyja, sem láta sér fátt fyrir brjósti brenna.

Í byrjun árs 2010 bjóða Fjallaleiðsögumenn öllum konum í fjallgöngur þar sem lokatakmarkið er ganga á Hvannadalshnúk, Kvenréttindadaginn 19. júní 2010.

Sambærilegri dagskrá var ýtt úr vör í ársbyrjun 2009 og er óhætt að segja að hún hafi slegið í gegn. Í boði er vegleg dagskrá þar sem konum gefst kostur á að fikra sig hærra og lengra, en þær áður hafa gert, með vandaðri leiðsögn reynslumikilla fjallaleiðsögukvenna.

Göngum saman á lág og há fjöll í góðum félagsskap undir öruggri leiðsögn.

Myndir úr ferðum Fjallkvenna 2010 - Myndir úr ferðum Fjallkvenna 2009

Í heildina er um að ræða 16 göngur auk fræðslukvölda. Fjallaleiðsögumenn sjá um að útvega allan nauðsynlegan öryggis- og jöklabúnað í þær ferðir sem þess er þörf. Heildarverð dagskrárinnar er 65.600 krónur en með tilliti til launamunar kynjanna lækkum við verðið og bjóðum öllum konum að slást í hópinn með okkur fyrir 53.000 kr.

Yfirleiðsögukona dagskrárinnar verður Helga María Heiðarsdóttir og henni til fulltingis verða þaulreyndar fjallagerplur sem margar hverjar standa fjallagörpum þessa lands síst að baki. Flestar tóku þær þátt í fjallkvennadagskránni 2009.

Fríðindi 2010:

Fjallkonur sem taka þátt í allri dagskránni fá:

  • Fræðslukvöld um göngutækni, fatnað, næringu og jöklabúnað.
  •  Sérkjör hjá 66°Norður
  • Vinkonuferð 6. febrúar. Takið vinkonurnar með!
  • Netklúbbsverð á öll námskeið Fjallaleiðsögumanna árið 2010
  • Jöklaganga í Skaftafelli eða á Sólheimajökli – boðsferð fyrir 2 sumarið 2010
  •  20% afsláttur af sól- og skíðagleraugum í gleraugnaversluninni Gleraugnasalan 65, gildir til 19.
          júní  2010
  •  Mánaðarkort í Sporthúsið
  • Ferðaávísun að upphæð 5.000 kr. sem gildir í allar lengri ferðir Fjallaleiðsögumanna árið 2010 nema
         dagsferðir


Af hverju sérstakur hópur fyrir Fjallkonur?

Launamunur kynjanna er ekki aðeins hvimleiður arfur fortíðarinnar heldur ólíðandi staðreynd í nútíma samfélagi. Ítrekaðar rannsóknir á launum kvenna og karla með sömu menntun og reynslu sýna svo að ekki verður um villst að hægt hefur þokast í átt að jafnri stöðu kynjanna þegar kemur að launamálum. Launamunur kynjanna er ennþá á bilinu 10–19% eftir því hvort um er að ræða laun á almennum vinnumarkaði eða hjá ríkinu.

Með þessu vilja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn leggja sitt af mörkum til þess að undirstrika réttmæta kröfu um jafna stöðu kvenna og karla.

Sjáumst á fjöllum.

Skilmálar

Öllum konum er heimil þátttaka í dagskránni Fjallkonur Íslands
Dætur  undir 16 ára aldri eru á ábyrgð mæðra sinna í öllum ferðum á vegum ÍFLM.
Hin almenna regla er að börn yngri en 12 ára fá ekki að fara í ferðir á jöklana tvo; Snæfellsjökul og   Hvannadalshnúk.
Eftir ferð á Skálahnúk 10.apríl næstkomandi meta leiðsögukonur ÍFLM hæfni dætra 12-15 ára og skera úr um hvort þær fá að taka þátt í áframhaldandi dagskrá. Skilyrði er að þær dætur sem metnar eru hafi mætt í alla dagskrárliðina.
Frítt er fyrir dætur yngri en 12 ára
12 – 15 ára dætur greiða eingöngu 26.500 kr

Styrkir til líkamsræktar
Athugið að ýmis stéttarfélög veita félagsmönnum sínum styrki til líkamsræktar sem þessarar. Sjá til dæmis upplýsingar um Varasjóð VR.

Innifalið : Allur nauðsynlegur jökla og öryggisbúnaður Fræðslukvöld um fatnað, næringu og fjallamennsku
Upphafsstaður : N1 í Ártúnsbrekkunni á austurakrein og við hvetjum konur til þess að sameinast eftir megni í bíla.