Fjallafólk Fjallaleiðsögumanna - HRH093

Hápunktar

  • Vikulegar kraftgöngur og æfingar
  • Mánaðarlegar fjallgöngur
  • Fagleg leiðsögn
Verð frá: 19.900 ISK

Fjallafólk

Fjallgöngur eru lífstíll Fjallafólks
Fjallafólk er hópur fyrir fólk sem vill leggja stund á fjallgöngur og útivist allt árið um kring.
Í boði er áhugaverð fjalladagskrá og reglulegar æfingar sem stuðla að heilbrigðri sál og líkamlegu hreysti.

Skráning og verð

Dagskrá Fjallafólks er sniðin að þörfum þeirra sem þegar hafa stigið sín fyrstu skref til fjalla ef svo má að orði komast. Dagskráin er sniðin að þörfum þeirra sem tóku þátt í Toppaðu með 66°Norður eða Fjallkonum síðastliðin tvö ár. Hins vegar eru allir áhugasamir velkomnir í hópinn.
Ólíkt fyrri göngudagskrám verður dagskrá Fjallafólks í gangi meira og minna allt árið.

Yfirleiðsögumaður Fjallafólks er Jón Gauti Jónsson, fjallaleiðsögumaður.

Fyrir hverja?
Þig ... sem nýtur þess að ganga á fjöll með skemmtilegum ferðafélögum.
Þig ... sem hefur ástríðu fyrir útivist og áskorunum.
Þig ... sem hefur eitthvað þvælst um fjöll áður og ert í þokkalegu formi.
Þig ... sem setur þér markmið til að stefna að.

Fjallgöngur og æfingarLjósm. Arnaldur Halldórsson
Dagskrá Fjallafólk skiptist í vikulegar kvöldæfingar innanbæjar eða við borgarmörkin og mánaðarlegar fjallgöngur.

Á vikulegum kvöldæfingum er lögð áhersla á þol- og styrktarþjálfun í bland við margskonar fróðleik. Ekki er ólíklegt að Esja verði vettvangur kvöldferða einu sinni í mánuði eða oftar þegar færi er gott. Vikulegar kvöldæfingar verða á þriðjudögum kl. 18.

Í mánaðarlegum fjallgöngum (a.m.k. 11 fjöll yfir árið) verður gengið á mörg falleg og krefjandi fjöll í dagsfæri við borgina (sjá hér að ofan undir flipanum Dagskrá og kort).
Samanlögð hækkun um 12.000 metrar og yfir 90 km í vegalengd. Hljómar mikið en ...

"Will allow you to climb summits; without, will you stay at the base of the mountain."   Kínversk spakmæli.

Öryggi og betri þjónusta
Í öllum fjallgöngum Fjallafólks verða að hámarki 16 þátttakendur á hvern leiðsögumann og færri þegar gengið er á jöklum. Hátt hlutfall leiðsögumanna í fjallgöngum tryggir góða þjónustu. Verði hópurinn nægilega stór er stefnt að því að bjóða upp á hraðaskipta hópa og ef áhugi er fyrir hendi er enn fremur stefnt að því að bjóða upp á sérstakan kvennahóp.

Fríðindi Fjallafólks
Fyrir utan hinn augljósa ávinning af reglulegum fjallgöngum standa Fjallafólki margs konar fríðindi til boða:

Sérkjör á fatnaði í 66°N.
Afsláttur á námskeiðum Fjallaleiðsögumanna 2010.
Fræðslukvöld tvisvar á ári.
Mánaðarkort í Sporthúsinu.

Ferðaávísun að upphæð 5.000 kr. sem gildir í allar lengri ferðir Fjallaleiðsögumanna árið 2010 nema   dagsferðir.

20% afsláttur af sól- og skíðagleraugum í gleraugnaversluninni Gleraugnasalan 65, gildir til 19. júní 2010

Jöklaganga í Skaftafelli eða á Sólheimajökli – boðsferð fyrir 2 sumarið 2010

Kynningarfundur
Þriðjudaginn 19. janúar næstkomandi er boðað til kynningarfundar þar sem dagskrá Fjallafólks verður kynnt í máli og myndum og tekið við skráningum. Eftir það fer skráning aðeins fram hér á vefnum.

Skráning og verð
Þegar þú hefur greitt þátttökugjöldin (ath. mismunandi greiðsluleiðir) ertu komin í hóp Fjallafólks.
Í boði eru fjórar mismunandi greiðsluleiðir og mundu að mörg stéttarfélög greiða niður líkamsrækt sem þessa. Sjá meðal annars reglur um Varasjóð VR.

Árgjald (19.900 kr. greitt við skráningu) fyrir æfingar en síðan er greitt sérstaklega fyrir stök fjöll (sjá verð í töflu). Samtals verðmæti 84.900 kr.

Allur pakkinn með greiðsludreifingu í sex mánuði (6% afsl.): 79.900 kr. 19.900 kr. greitt við skráningu og síðan 10.000 kr. af korti í 6 mánuði skv. boðgreiðslusamningi. Aðeins bókanlegt í síma: 5114960.

Allur pakkinn staðgreitt (10% afsl.): 75.900 kr. - Bókað og greitt á netinu - Bóka núna
Allur pakkinn staðgreitt öll dagskráin ef tveir eða fleiri bóka saman (15% afsl.): 71.900 kr. - Aðeins bókanlegt í síma: 5114960.

Smelltu á Bóka núna! eða hafðu samband við Jón Gauta til að ganga frá skráningu þinni.

Skilmálar

Öllum er heimil þátttaka í dagskrá Fjallafólks
Börn undir 16 ára aldri eru á ábyrgð foreldra sinna eða forráðamanna í öllum ferðum Fjallafólks.
Hin almenna regla er að börn yngri en 12 ára fá ekki að fara í ferðir á jöklana; Snæfellsjökul, Hvannadalshnúk, Tindfjallajökul og Eiríksjökul.
Að því gefnu að börn hafi mætt í alla dagskrárliði Fjallafólks og að höfðu samráði yfirleiðsögumanns Fjallafólks og foreldra verður hæfni barna 12-15 ára, til að ganga á jöklana, metin.
Frítt er fyrir börn (í fylgd foreldra) yngri en 12 ára í allar vikulegar kvöldæfingar.
12 – 15 ára börn fá helmings afslátt af verði forráðamanns.

Innifalið:
Leiðsögn, fræðsla, ýmis sérkjör, sameiginlegur útbúnaður s.s. jöklalína, skyndihjálparútbúnaður og fjarskiptatæki.

Ekki innifalið:
Akstur, sérhæfður einstaklingsútbúnaður fyrir fjallgöngur að vetrarlagi og jöklagöngur (s.s. broddar, belti, ísexi). Búnað má leigja hjá Fjallaleiðsögumönnum (sjá verðlista) og svo er stefnt að því að standa fyrir sameiginlegum magninnkaupum á útbúnaði fyrir þátttakendur.

Hafið í huga:
Alla jafna er lagt af stað frá bensínstöð N1 í Ártúnsbrekkunni, nema annað sé tekið fram. Farið er á eigin bílum að uppgöngustað en leitast við að sameinast í bíla eins og kostur er.

Fjallaleiðsögumenn ... örugglega á fjöllum

Verð fyrir börn : 9.950 ISK