Þverártindsegg - IMG29
Brattar hlíðar og háar eggjar
Þverártindsegg er einn þessara afskekktu fjallatoppa sem virðast of langt í burtu til þess að leggja þá undir fót. Eggin er liðlega 4 km langur hryggur sem blasir við austan Breiðamerkurjökuls, hreykir sér þar hátt yfir Veðurárdalsfjöll. Tindurinn sjálfur rís beint upp af botni Kálfafellsdals, brattur og fagur. Lagt er upp frá bænum Hala í Suðursveit og ekið inn Kálfafellsdalinn áður en ganga á sjálft fjallið hefst, upp bratta hjalla og skriður upp á jökulinn sem leiðir okkur upp á hátindinn. Óhætt er að segja að ganga þessi er einstök enda má segja að heimsókn í fjallakima þennan komist næst því að vera í Alpalandslagi á Fróni. Útsýni af hátindinum er við bestu skilyrði óviðjafnanlegt og fullkomnlega erfiðisins virði. Heildargöngutími er 10 – 15 klst og gönguhækkun 1400m.

Innifalið : Allur nauðsynlegur tæknilegur búnaður
Hafa í huga : 6 manns á hvern leiðsögumann, lágmarksfjöldi 3
Upphafsstaður : Hali í Suðursveit

English
Íslenska

















