Sveinstindur í Öræfajökli - IMG26

Hápunktar

  • Magnað landslag
  • Stórkostlegt leiðarval
Verð frá: 22.900 ISK

Í fótspor Sveins Pálssonar

Sveinstindur í Öræfajökli lætur ekki mikið yfir sér þar sem hann blasir við göngufólki á leið á Hvannadalshnúk, við austurbarm öskjunnar. Ef horft er á Öræfajökul frá Jökulsárlóni gnæfir Sveinstindur við himin og virðist vera hæsti tindur þessarar miklu eldkeilu. Uppgönguleiðin er líklega ein glæsilegasta leiðin sem hægt er að fara á Öræfajökul. Upp frá gróskumiklu Ærfjallininu rís brattur hryggur sem stendur upp úr úfnum skriðjöklunum beggja vegna. Efri hluti leiðarinnar fylgir hryggnum í landslagi sem minnir meira á Alpana en Ísland og á sér vart hliðstæðu hérlendis. Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fóru þessa leið fyrst vorið 2008 og á hún eftir að skipa varanlegan sess í ferðum okkar á Öræfajökul.
Frá tindi Sveinstinds er haldið yfir þvert yfir öskju Öræfajökuls og farið niður Sandfelsleiðina. Heildargöngutími 14-16 klst. hækkun 2000 metrar.


Innifalið : Allur nauðsynlegur jökla og öryggisbúnaður er innifalinn í verði ferðar
Hafa í huga : 8 manns á hvern leiðsögumann, lágmarksfjöldi 4
Upphafsstaður : bækisstöð ÍFLM í Skaftafelli