Öskjuhringur Öræfajökuls - IMG251
Á hæstu tindum
Öskjuhringur Öræfajökuls er án ef ein mest krefjandi fjallganga landsins og verðugt verkefni fjallaáhugafólks. Vorið 2009 fór Leifur Örn Svavarsson fyrstu skipulögðu gönguna um þá sjö tinda sem prýða öskjubarminn og verður leikurinn endurtekinn vorið 2010. Farið verður upp Virkisjökul á Hvannadalshnúk, áfram á Snæbreið, Sveinstind og Sveinsgnípu, Hnappana tvo og endað á Rótarfjallshnúki áður en haldið er niður um Sandfellsleið. Gera verður ráð fyrir 20 klst göngu og gefst færi á því að taka ærlega matar- og hvíldarpásu á hentugum stað á milli tinda. Hér má sjá myndir Kristjáns Guðlaugssonar sem hann tók í ferðinni síðast liðið vor.

Innifalið : Allur nauðsynlegur tæknilegur búnaður til jöklaferða sem og eldunaráhöld og öryggisbúnaður
Hafa í huga : Þetta er löng og krefjandi ganga en ekki tæknilega erfið. Lágmarksfjöldi er 4, mest 6 manns á hvern jöklaleiðsögumann og til þess að fullnægja öllum öryggisstöðlum fara ekki færri en 2 leiðsögumenn.
Upphafsstaður : bækistöð Fjallaleiðsögumanna í Skaftafelli

English
Íslenska

















