Miðfellstindur - IMG250
Jónsmessuganga um magnaða fjallasali
Miðfellstindur gnæfir tilkomumikill yfir Kjósinni inn af Morsárdal, rétt austan við Þumal og er hæsti tindur Skaftafellsfjallanna. Gera verður ráð fyrir löngum degi enda lagt upp frá tjaldstæðinu í Skaftafelli. Leiðin liggur fyrst yfir Skaftafellsheiðina og áfram inn Morsárdalinn í fjallasali Kjósarinnar. Í Kjósarmynninu gefst færi á góðri hvíld, og göngufólk á þess kost að hita sér súpu eða hraðrétt (þurrmat) þar enda nauðsynlegt að vera vel nærður fyrir sjálfa fjallgönguna. Eftir dágóða hvíld er svo lagt af stað inn í Kjósina og haldið á brattann um skriður, snjóbrekkur og klettarima alla leið upp á Miðfellstindinn. Jökulfönnin undir tindinum getur verið varasöm og því nauðsynlegt að hafa viðeigandi öryggisbúnað meðferðis. Útsýni af hátindinum er við bestu aðstæður stórkostlegt til allra átta og ekki spillir að leiðin liggur um tilkomumikið og litskrúðugt landslag Kjósarinnar. Leiðin til baka í Skaftafell verður svo um aura Morsár og eftir stígnum undir Skaftafellsheiðinni. Óhætt er að lofa mögnuðum degi í þessum fjallasal. Heildargöngutími 18 - 20 klst, gönguhækkun og göngulækkun 1350m.
Skoðið myndir frá sólstöðugöngu Fjallaleiðsögumanna á Miðfellstind 2009 hér

Innifalið : Allur nauðsynlegur tæknilegur búnaður, eldunaráhöld og öryggisbúnaður
Hafa í huga : Þetta er löng og krefjandi ganga en ekki tæknilega erfið. 8 manns á hvern leiðsögumann og til að fullnægja öryggisstöðlum fara aldrei fara færri en 2 leiðsögumenn, lágmarksfjöldi 4 manns.
Upphafsstaður : bækistöð Fjallaleiðsögumanna í Skaftafelli

English
Íslenska

















