Hvannadalshnjúkur - Virkisjökulsleið - IMG254
Virkisjökulsleið á Hvannadalshnjúk er að flestra mati fallegasta gönguleiðin á hæsta tind landsins. Leiðin liggur á milli hrikalegs Hvannadalshryggsins og jökulbrattans.
Hvannadalshnjúkur er hæsti tindur landsins 2111 metrar og upp á hann liggja nokkrar mismunandi gönguleiðir.
Virkisjökulsleið var lengi vel aðal gönguleið Fjallaleiðsögumanna á Hvannadalshnúk en vegna síminnkandi snjóalaga varð sú leiðin torfærari og því hefur Sandfellsleiðin oftast verið farin undanfarin 5 ár. Virkisjökulsleiðin er um margt ólík Sandfellsleiðinni í hrikalegum krika milli jökuls og Hvannadalshryggsins, um brattann jökulinn, undir Dyrhamar og upp á Hvannadalshnjúk. Klárlega leið sem er verðugt verkefni fyrir áhugasamt fjallafólk. Þetta er krefjandi ganga enda hækkunin meiri en 2000 m og dagleiðin ríflega 20 km. Gera verður ráð fyrir 10 - 15 stundum í gönguna.
Gönguferð á hæsta tind landsins er fremur auðveld tæknilega en tekur drjúgt af úthaldinu. Ferð á Hvannadalshnjúk er ógleymanleg upplifun og allmargir fara ár hvert. Alla jafna er farin Sandfellsleið sem er tiltölulega auðveld gönguleið og fær mestan hluta árs. Virkisjökulsleið er tiltölulega auðfær snemma vors, svo fremi að snjóalög séu sæmileg.
Fyrir þá sem þurfa að útvega sér gistingu í Skaftafelli bendum við á Hnjúkstilboðið með gistingu.

Innifalið : Allur nauðsynlegur jökla og öryggisbúnaður og leiðsögn
Hafa í huga : Lágmarksfjöldi er 2
Lengd : 10 - 15 klukkustundir
Upphafsstaður : Bækistöð Íslenskra fjallaleiðsögumanna við þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins í Skaftafelli.
Fundur er með leiðsögumanni í Skaftafelli kvöldið fyrir ferðina. Símanúmerið hjá leiðsögumönnum er 8942959.

English
Íslenska

















