Hrútsfjallstindar - IMG27

Hápunktar

  • Hrútfjallstindar
  • 1875 metrar
  • Flott fjallaleið
  • Skaftafell
  • Öræfi
Verð frá: 22.900 ISK

Í heimi jökla og hárra tinda

Hrútfjallstindar er nafnið á 4 glæsilegum fjallstindum sem standa norðan við Svínafellsjökul og rís sá hæsti þeirra 1875m yfir sjávarmál. Fjallganga á Hrútfjallstinda er í sambærilegum erfiðleikaflokki og  ganga á Hvannadalshnúk og er góður kostur fyrir þá sem vilja komast í krefjandi fjallgöngu sem þó er tæknilega auðveld. Leiðin býður upp á stórbrotið útsýni yfir Öræfajökul sem og skriðjöklana Svínafellsjökul og Skaftafellsjökul. Stórkostleg fjallganga um heim jökla og hárra tinda.

Hér má sjá útbúnaðarlista fyrir göngur á hájökla.

Ath. sérstakt tilboð á aukabrottför 19. maí 2010 á ISK 19.900.


Lágmarksaldur : 16 yrs.
Innifalið : Nauðsynlegur búnaður til jöklaferða innifalinn í verði, 2 - 8 þátttakendur á hvern leiðsögumann.
Hafa í huga : Lágmark tveir þátttakendur.
Lengd : 14-16 klst.
Upphafsstaður : Frá skála Íslenskra fjallaleiðsögumanna við þjónustumiðstuð Þjóðgarðsins í Skaftafelli.