Frá Rvk: Hengill og Jöklaganga á Sólheimajökli - IMG02

Hápunktar

  • Blár ís
  • Jöklaganga
  • Hverasvæði
  • Heit laug
  • Eldgosaferð
Verð frá: 22.900 ISK

Auðveld - hófleg ganga á hverasvæði og ganga á jökli.

Þessi ferð býður upp á margt af því besta sem náttúra Íslands hefur upp á að bjóða. Ferðin hefst á auðveldri göngu um jarðhitasvæðið á Hengilssvæðinu og niður í Reykjadal þar sem við skoðum hveri og böðum okkur í heitum læk. Við höldum því næst áfram í austurátt, fáum okkur hádegisverð í Hveragerði og ökum að Sólheimajökli í Mýrdalsjökli. Á leiðinni að Sólheimajökli gefast góð tækifæri til þess að sjá eldgosið í Eyjafjallajökli í fullum gangi og afleiðingar öskufallsins í sveitinni sunnan gossins. Á Sólheimajökli leiðsegjum við þér um undraheim blás íss, sterk skil ösku og íss og skoðum sprungur og svelgi í jöklinum. Á bakaleiðinni sjáum við Skógafoss og skoðum Seljalandsfoss.


Lágmarksaldur : 10 yrs.
Innifalið : Leiðsögn, ísaxir, mannbroddar og öryggisbúnaður.
Hafa í huga : Hlý föt, regnföt, gönguskór og nesti. Einnig er hægt að kaupa sér nesti á leiðinni. Við lánum regnföt ef beðið er um.
Lengd : 10 to11 hours in total, 4 - 5 hours hike.
Upphafsstaður : Farþegar eru sóttir á gistiheimili kl. 8:30.