Á skíðum upp á Hnúk og niður Svínafellsjökul - IMG253
Flottasta fjallaskíðaleið landsins. Nærri 2.000 metra lækkun í fullkomnum fjallasal.
Ekki þarf að fjölyrða um Hvannadalshnúk, hæsta tind landsins en ganga á hann er fyllilega hæðar sinnar virði í gulli. Hitt er svo annað mál að ekki er amalegra að ferðast á skíðum um undirhlíðar hans og skriðjökla. Ein flottasta fjallaskíðaleið þessa lands er án efa niður mikilfenglegan Svínafellsjökulinn. Vorið 2010 bjóða Fjallaleiðsögumenn upp á eina brottför í þessa krefjandi en mögnuðu skíðaferð. Farið verður upp Sandfellsleiðina á Hnúkinn áður en skíðaferðin niður hefst, sem án efa felur í sér einhverjar flottustu salíbunur þessa lands.Langur og krefjandi dagur!
Staðfest brottför 13. maí

Innifalið : allur nauðsynlegur öryggis- og jöklabúnaður, leiðsögn og fararstjórn
Hafa í huga : Aðeins 4 á hvern leiðsögumann, lágmarksfjöldi 2

English
Íslenska

















