Þó að dagskrá Skíðagengisins byggist upp á ferðum verður engu að síður lögð áhersla fræðslu um snjóflóð og örugga ferðamennsku. Í ferðunum verður endurtekið farið yfir á raunhæfan hátt hvernig snjóflóðahætta er metin, hvernig rétt ferðahegðun getur dregið úr áhættu tengdri skíðun utan brauta og rétt viðbrögð við óhöppum verða æfð.
Fyrir utan augljósan heilsufarslegan ávinning af reglulegum skíðaðaferðum standa þátttakendum í skíðagengi Fjallaleiðsögumanna margs konar fríðindi til boða:
Afsláttur á námskeiðum Fjallaleiðsögumanna 2012 Aðgengi að dagskrá Fjallafólks og Fjallagengis Sameiginleg innkaup og afsláttarkjör af útbúnaði Jöklaganga í Skaftafelli eða á Sólheimajökli, boðsferð fyrir tvo, sumarið 2012 Mánaðarkort í Sporthúsinu Ferðaávísun sem gildir í allar lengri ferðir Fjallaleiðsögumanna árið 2012
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996