12 mán: 24.900 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Fjallafólk!

6 mán: 13.900 kr.
  Bókaðu núna í fjallgönguhópinn Fjallafólk!

Skráning og verð


Starfsár Fjallafólks hefst í janúar og er þátttökugjald fyrir heilt ár 24.900 kr. en hálft ár 13.900. Hvert tímabil miðast út frá 1. næsta mánuð eftir skráningu.


Boðið er upp á 15% afslátt af árgjaldi fyrir hjón og sambúðarfólk. Til að fá hjónaafsláttinn þarf að hafa samband við info@mountainguides.is eða hringja í síma 522 4975.


Þegar gengið hefur verið frá skráningu hér á síðunni ert þú komin í hóp Fjallafólks. Rétt er að benda á að ýmis stéttarfélög hafa niðurgreitt þátttökugjöld sem þessi. Sjá meðal annars reglur um Varasjóð VR.

 

Laugardagsfjallgöngur


Greitt er séstaklega fyrir hverja laugardagsfjallgöngu og er verðið mismunandi eftir lengd og erfiðleika ferðarinnar. Alls eru fjallgöngurnar 11 á starfsárinu og skiptast þær í eftirfarandi verðflokka:


8 fjöll => 5.200 kr./fjall (flokkur 1)
2 fjöll => 9.500 kr./fjall (flokkur 2)
1 fjall á 16.500 kr. (flokkur 3)


Þegar þátttakandi skráir sig í laugardagsfjallgönguna borgar hann fyrir ferðina í leiðinni.

Athugið að sérhæfður útbúnaður svo sem broddar og exi er ekki innifalinn í verði. Fjallaleiðsögumenn bjóða hins vegar útbúnað til leigu þegar á þarf að halda. Til langstíma er þó skynsamlegra að eignast slíkan útbúnað og geta leiðsögumenn verið til ráðleggingar um slíkt.


Innifalið í þátttökugjaldi/árgjaldi Fjallafólks:


Að minnsta kosti 44 þriðjudagsþrekæfingar miðað við fullt ár. Afsláttur á verði mánaðarlegra fjallgangna (a.m.k. 11 á fullu starfsári) Ýmis sérkjör (fríðindi)

 

Samskipti og undirbúningur:


Tölvupóstur með upplýsingum um fyrirhugaða þrekæfingu, dagsferð eða annað er sendur á félaga Fjallafólks fyrir sérhvern viðburð.

 

Skilmálar:


Öllum er heimil þátttaka í dagskrá Fjallafólks
Börn undir 16 ára aldri eru á ábyrgð foreldra sinna eða forráðamanna í öllum ferðum Fjallafólks.
Hin almenna regla er að börn yngri en 12 ára fá ekki að fara í ferðir á jöklana; Snæfellsjökul, Hvannadalshnúk, Tindfjallajökul og Eiríksjökul.
Að því gefnu að börn hafi mætt í alla dagskrárliði Fjallafólks og að höfðu samráði yfirleiðsögumanns Fjallafólks og foreldra verður hæfni barna 12-15 ára, til að ganga á jöklana, metin.
Frítt er fyrir börn (í fylgd foreldra) yngri en 12 ára í allar vikulegar kvöldæfingar.
12 – 15 ára börn fá helmings afslátt af verði forráðamanns.

 

Innifalið:


Leiðsögn, ýmis sérkjör, ýmiss sérhæfður útbúnaður sem nýtist öllum hópnum.

 

Ekki innifalið:


Akstur, sérhæfður einstaklingsútbúnaður fyrir fjallgöngur að vetrarlagi og jöklagöngur (s.s. broddar, belti, ísexi). Búnað má leigja hjá Fjallaleiðsögumönnum (sjá verðlista) og svo er stefnt að því að standa fyrir sameiginlegum magninnkaupum á útbúnaði fyrir þátttakendur.


Hafið í huga:


Alla jafna er lagt af stað frá bensínstöð N1 í Ártúnsbrekkunni, nema annað sé tekið fram í pósti. Farið er á eigin bílum að uppgöngustað en leitast við að sameinast í bíla eins og kostur er.

 

Fjallaleiðsögumenn ... örugglega á fjöllum

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN