Hvannadalshnúkur 2005

Kærar þakkir fyrir stórkostlega göngu og úrvals leiðsögn á Hvannadalshnjúk þann 3ja júní.

Fagmennska Íslenskra fjallaleiðsögumanna er í alla staði var til mikillar fyrirmyndar, ég myndi treysta þeim öllum fyrir lífi mínu eftir þessa ferð.

Kveðja, Dóra Magnúsdóttir markaðsstjóri ferðamála hjá Höfuðborgarstofu

Hvannadalshnúkur júní 2010

 Það er ekkert mál að kvarta og allir fljótir til þess, en hrósa er alltof lítið gert af!!
Ég ætla að gera það nú ég fór á Hvannadalshnjúk laugardaginn 20. júní. Leiðsögumenn voru Ásgeir, Hans og Jón, mikið rosalega eiga þeir mikið hrós skilið.

Atlasfjöll í Einmánuði

Einstakt ferðalag sem liggur frá Marrakech, borginni sem sameinar menningu Araba og Berba á eftirminnilegan og heillandi hátt. Borg sem þekkt er fyrir safaríkar appelsínur, taktfast hljómfall Arabatónlistarinnar og bænahús múslimanna, moskurnar.

Mont Blanc 2008

Fyrir áhugafólk um fjallamennsku eru Alpafjöllin áskorun sem erfitt, jafnvel ómögulegt, er að skorast undan. Hver hefur svo sem ekki heyrt minnst á Eiger, Matterhorn, jafnvel líka Grand Jorasse, Petit Dru, Dent du Giant o.fl.? Svo ekki sé minnst á Mont Blanc (Fjallið hvíta) sem er hæsti tindur Alpanna (4.808m). Þetta eru einfaldlega fjöll sem seiða mann til sín og maður er ekki í rónni fyrr en að hafa stigið fæti sínum á tind einhverra þeirra - eða í það minnsta gert heiðarlega tilraun til þess.

Marokkó nóvember 2009

Starfsfólk Íslenskra fjallaleiðsögumanna ásamt nokkrum fylgifiskum og einni móður héldu af stað í létt tölt um Atlasfjöll Norður Afríku í Marokkó að morgni fimmtudagsins 5. Nóvember 2009. Ferðin hófst í bítið á BSÍ þar sem við tókum öll (19 talsins) rútuna saman  á flugvöllinn. Eftir langt flug og marga biðsali mismunandi flughafna var lent í Marrakesh að kvöldi til og þar hófst hið eiginlega ævintýri.

Núptaðarskógur - Skaftarfell júlí 2009

Fimmtudaginn 16 júlí lögðum við pabbi ásamt leiðsögumanni og 9 öðrum af stað frá Núpstaðarskógi til Skaftafells. Fyrsta daginn gengum við erfiða en gríðarlega fallega leið og skemmtilega. Við tjölduðum nálægt fossi sem var mjög notalegt eftir erfiðann dag.

Hrútfjallstindar júní 2010

Sæll Ívar

Ferðin á Hrútsfjallstinda um helgina var algjörlega frábær.
Leiðsögumaðurinn okkar Guðmundur Arnar stóð sig mjög vel.

Hvannadalshnúkur - Hrútfjallstindar 29.maí 2010

Mig langar bara að þakka kærlega fyrir mig og þessi ferð var alveg stórkostleg og ekkert sem toppar hana.  Veðrið var nátturulega truflað.  Svo langar mig að benda ykkur á að hann Haukur fararstjórinn okkar er sá besti.  Hvernig hann tæklaði jökulinn á göngunni upp var alveg frábært.  Það var umtalað í hópnum okkar hvað hann gerði þetta vel.

Hvannadalshnjúkur - Hrútfjallstindar 29.maí 2010

Mig langar til að senda ykkur þennan póst þar sem umræðan í hópnum mínum var það jákvæð í garð leiðsögumannsins okkar hans Hauks.

Þessi hópur er búinn að vera að mestu saman í undirbúningnum í vetur, og oft lent með Hauk sem guide hjá okkur.

Í Hnúksferðinni um síðustu helgi stóð hann sig frábærlega, alltaf yfirvegaður og jákvæður og með góða taktík í göngunni.

Hvannadalshnúkur maí 2007

Sæl Svana

Þetta var alveg frábær ferð – þessir gaurar sem löbbuðu með okkur voru alveg frábærir allir saman, vel skipulagt og skemmtilegt, ekki spillti gott færi og veður.
Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN