Zsolt er fæddur og uppalinn í Ungverjalandi. Zsolt hefur stundað íþróttir og fjallgöngur af miklum krafti í sínu heimalandi og víðar í Evrópu, þá sérstaklega fjallgöngur í Mið-Evrópu og í Noregi. Árið 2007 flutti hann og kona hans til Íslands til þess að vinna sem arkitektar ásamt því að ferðast um landið og ganga á fjöll. Zsolt er meðlimur í útkallshóp Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík og hefur starfað með henni nánast síðan hann flutti til Íslands. Áhugamál Zsolts sveiflast með árstíðunum, allt á milli fótbolta, snjóbretta, gönguferða, kanóróðurs og gönguskíða.
Í dag vinnur Zsolt hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum sem gönguleiðsögumaður, enda fær á ensku, þýsku og íslensku ásamt Ungversku.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996