Þórdís Erla Ágústsdóttir

Gönguleiðsögumaður

Þórdís Erla ÁgústsdóttirÞórdís er leiðsögukona eins og leiðsögukonur eiga að vera. Hún leiðsegir um Ísland vegna þess að henni þykir vænt um landið, elskar að vera úti í náttúrunni, að hreyfa sig, vera með góðu fólki og fræða það. Þórdís er með leiðsögumannapróf frá Íslenska leiðsöguskólanum, kennsluréttindi frá Listaháskóla Íslands og ljósmyndapróf frá École Superieure de la Photographi í Arles í Frakklandi. Samhliða vinnu sinni við leiðsögn leggur hún stund á meistaranám í menningarmiðlun við Háskóla Íslands.

Þórdís hefur búið víða erlendis, Frakklandi, Spáni, Túnis, Portúgal og New York. Hún á því ekki í miklum vandræðum með að leiðsegja á ensku, frönsku og spænsku. Hún hefur tekið námskeið í mörgum af þessum tungumálum auk námskeiða í skyndihjálp, norðurljósum, stjörnufræði og ýmissa annara ferðatengdra greina.

Hvort sem Þórdís er í vinnunni eða ekki má líklega finna hana gangandi eða á skíðum uppi um fjöll og firnindi.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN