Steinar Sigurðsson hefur verið leiðsögumaður hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum síðan árið 2008 og hefur mest unnið á jöklunum, Svínafellsjökli og Sólheimajökli auk ferða á Hvannadalshnjúk. Eins og á við um marga leiðsögumenn okkar eru jöklarnir honum jafnt áhugamál sem starfsvettvangur og er hann því eins og svampur á fróðleik um jökla.
Fyrir utan jöklagöngurnar heilla gönguskíðaferðir um Ísland í vetrarham mikið. Slíkar ferðir bjóða upp á einstakan ferðamáta um hálendi Íslands í fullkomnu jafnvægi við umhverfið. Steinar leiðsegir því alltaf í einhverjum gönguskíðaferðum á hverjum vetri.
Fjallaferill Steinars hófst hjá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík þar sem hann hefur verið félagi um árabil. Hann er virkur félagi í undanfara-, fjalla- og fallhlífahóp og er í dag æfingastjóri sveitarinnar. Auk þess hefur hann tekið að sér tveggja vetra þjálfun nýliðahóps og stýrði snjóbílahópinum á meðan hann var til. Steinar sótti fjallabjörgunarnámskeiðið Rigging for Rescue í Kanada á vegum Flugbjörgunarsveitarinnar og er með viðurkennd Wilderness First Responder skyndihjálparréttindi.
Steinar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og starfar ásamt leiðsögn á skrifstofu Íslenskra Fjallaleiðsögumanna.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996