Maxime Poncet

Staða: Jöklaleiðsögumaður (Level II Hard Ice Guide) hefur einnig lokið 8 daga fjallaleiðsögunámskeiði hjá ÍFLM (Mountain Skills Course). Maxime er einnig menntaður í gönguleiðsögn frá Frakklandi.

Menntun: Auk þess að vera liðtækur í íslensku og ensku lærði Maxime frönsku um leið og hann tók inn móðurmjólkina. Maxime er líka með masters gráðu í stærðfræði og réttindi gönguleiðsögumanns í Frakklandi (accompagnateur en montagne). Maxime er með aukin ökuréttindi.

Sérhæfing: Yfir sumar tímann heldur Maxime til á hálendi landsins þar sem hann leiðsegir erfiðar bakpokaferðir með franska gesti Fjallaleiðsögumanna. Á veturnar tekur hann á móti fólki í hinar ýmsu dagsferðir sem ÍFLM býður frá Reykjavík. Þegar fer að vora heldur Maxime með frakka inn á hálendið og jökla á gönguskíðum og með púlku í eftirdragi.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN