Jósep Gíslason

Level 1 jöklaleiðsögumaður

Jósep Gíslason er píanókennari og prentsmiður að mennt en hefur fjölbreytta starfsreynslu á ýmsum sviðum. Fjöllum landsins hefur hann sýnt áhuga frá blautu barnsbeini og ólst upp við ferðalög um landið. Hann hefur starfað sem göngu- og fjallaleiðsögumaður í mörg ár, bæði á Íslandi og erlendis en hóf störf hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum 2009. Þar hefur hann starfað bæði í dagsferðum og jöklaferðum, m.a. á Sólheimajökli, í Skaftafelli og farið ferðir á Hvannadalshnúk og Hrútfjallstinda. Áhugi á útivist og ferðamennsku af hvers konar tagi hefur leitt hann til annarra landa og hefur hann brölt upp um fjöll og firnindi víða, Krít, Sviss, Tyrkland, Sikkim Himalaya, Grænland og Ekvador þar sem hann fór á tind Cotopaxi.

Jósep gekk í Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík 1998 og hefur tekið fjölda námskeiða eftir það, m.a. Wilderness First Responder skyndihjálparnámskeið og NZMGA Level 1 jöklaleiðsagnapróf. Hann hefur gott vald á íslensku, ensku og dönsku og sótti ICESAR björgunarráðstefnu í Kanada 2005. Jósep er annt um náttúruna en jafnframt að fólk fái að upplifa hana í sinni hreinustu mynd á hvaða árstíma sem er.

Jósep var einn af stofnendum og útgefendum útivistartímaritsins Útiveru árið 2003 og ferðavefsíðunnar www.utivera.is. Hann átti bókaútgáfu sem m.a. gaf út ferðatímaritið Á ferðinni, bækur eins og Skyndihjálp á ferðinni, Iceland Overland (bók um ferðalög á Íslandi fyrir mótorhjólaunnendur) og göngukort um nágrenni Högnhöfða. Hann hefur haldið ýmsa fyrirlestra um gönguferðir og háfjallaferðir sínar á Íslandi og erlendis. Frá árinu 2008 hefur hann starfað í tengslum við úrræði varðandi atvinnuleysi á íslandi auk fjallaleiðsagnar.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN