Ingibjörg er ferðamála- og þjóðfræðingur. Líklega var það áhugi hennar á ólíkum háttum mismunandi þjóða, ferðalög og búseta á framandi slóðum sem áttu mestan þátt í náms og starfsvali hennar en Ingibjörg hefur starfað við leiðsögn heima og erlendis s.l. 20 ár. Hún hefur starfað fyrir ÍFLM um árabil. Ingibjörg hefur tekið virkan þátt í náttúruverndarmálum og óhætt að segja að hún ber gott skynbragð á flest það sem finna má og nýta frá móður jörð. Ingibjörg er ennfremur mikill matgæðingur og hefur tekist að galdra fram ótrúlegustu rétti í tjaldi uppi á reginfjöllum, þrátt fyrir nauman kost. Matreiðslukver hennar, Með veislu í farangrinum er gott dæmi um það.
Áhugamál Ingibjargar eru af ýmsum toga og þó ferðalög á framandi slóðir skipi þar efstu sætin er allt eins víst að hannyrðir eða hnefatafl fylgi fast á eftir.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996