Inga Dagmar hefur verið á fjöllum sl. 20 ár hvort heldur sem er hlaupandi, klifrandi, gangandi eða með telemarkfjalirnar reyrðar á iljar sér. Stúlkan er vel upp alin til óbyggðalífs af Hjálparsveit skáta í Reykjvaík og landvörslu til margra ára. Inga er betur að sér en flestir um flóru og faunu enda líffræðingur að mennt. Ekki dugar það til og nemur hún nú sjúkraþjálfun ásamt því að vinna við kortagerð hjá Veðurstofu Íslands. Inga er ódrepandi bjartsýn, drífandi og hvetjandi og veit fátt dásamlegra en daga á fjöllum í góðu kompaníi. Það er leitun að jafn reyndum og brosmildum leiðsögumanni.
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996