Hallgrímur Magnússon

Fjallaleiðsögn / Mountain Guide

Hallgrímur Magnússon er byggingartæknifræðingur og hefur um árabil verið einn helsti fjallamaður landsins. Hann hefur stundað ferða- og fjallamennsku frá unga aldri og meðal annars stundað fjallgöngur og klifur í Ölpunum og Bandaríkjunum auk klifurs og ferðamennsku á Íslandi.

Hallgrímur starfar sem verkefnastjóri hjá verktakafyrirtækinu Eykt en í frístundum hefur hann töluvert unnið sem fjallaleiðsögumaður á vegum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna og meðal annars stýrt leiðöngrum til austurstrandar Grænlands.

Þekktastur er Hallgrímur líklega fyrir að hafa ásamt þeim Einari Stefánssyni og Birni Ólafssyni orðið fyrstur Íslendinga til að komast upp fyrir 8000 metrana þegar þeir klifu fjallið Cho Oyu árið 1995 og þá ekki síður fyrir leiðangurinn á topp Everest tveimur árum síðar.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN