Guðjón Örn Björnsson
Staða: Guðjón er umsjónarmaður verkefnisins "Toppaðu með 66°N og íslenskum Fjallaleiðsögumönnum", hann hefur verið viðloðandi fyrri "Toppaðu verkefni" síðastliðin fjögur ár. Guðjón hefur starfað sem leiðsögumaður á Hvannadalshnúk oþh. fjöll sem og jöklagöngu. Guðjón mun ljúka endurmenntunarnámskeiði íslenskra fjallaleiðsögumanna Hnúkur II í vor.
Menntun: Guðjón stundaði framhaldsnám í verkfræði í Klettafjöllum Kanada, og starfar sem verkfræðingur hjá Almennu verkfræðistofunni. Hann hlaut sitt fjallamennsku-uppeldi í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og hefur starfað þar síðan 1998. Guðjón hefur lokið ýmsum sérhæfðum fagnámskeiðum frá Landsbjörgu, til að mynda fagnámskeið í fjallamennsku og sérhæft stjórnunar og snjóflóðanámskeið á vegum Rauða Krosssins í Noregi
Sérhæfing: Guðjón hefur tekið virkan þátt í hinum ýmsu hreyfihópum íslenskra fjallaleiðsögumanna, og fer reglulega með hópa á hin ýmsu stærri fjöll víðsvegar um Ísland. Hann vinnur einnig gjarnan einhverjar vikur í jöklaleiðsögn í Skaftafelli á hverju ári.
Það eru fá svið útivistar sem Guðjón hefur látið ósnert, kajak, skotveiði, gönguskíði, klifur, gönguferðir, óbyggðahlaup, hellakönnun og svo mætti lengi telja.
Á hverju ári reynir Guðjón að ráðast í krefjandi verkefni og bæta hann sem fjallamann. Verkefnin geta verið af ýmsum toga, klifurleið á Hrútfjallstinda, fjallaskíðaferð á Tröllaskagann, Mt. Toubkal í Marroco, hellaskoðun í Þríhnjúkahelli eða skíðun á hinni óviðjafnanlegu Haute Route.