Gregory Facon

Fjallaleiðsögn / Mountain Guide

Gregory Facon er Frakki sem talar reiprennandi íslensku. Árið 1993 dvaldi hann sem skiptinemi á Íslandi og náði tökum á okkar ástkæra ylhýra. Gregory hefur unnið við leiðsögn um árabil. Hann hefur bæði farið með franska ferðamenn um hálendi Íslands, á skíðum og tveim jafnfljótum, og Íslendinga á Mt. Blanc.

Árið 2002 hlaut hann réttindi sem háfjallaleiðsögumaður í Frakklandi og varð þá fyrsti meðlimur Alþjóðlegu fjallaleiðsögumanna samtakanna UIAGM sem talar íslensku. Gregory þekkir svæðið umhverfis Mt. Blanc og svissnesku Alpana eins og handarbakið á sér. Hann hefur farið uþb 40 sinnum með hópa á Mt. Blanc og 10 sinnum hefur hann farið Haute Route á skíðum.

Gregory starfar í vetur sem menntaskólakennari og kennir líffræði og landafræði en ætlar að nota skólafríin sín til þess að starfa fyrir Íslenska Fjallaleiðsögumenn.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN