Ágúst Þór Gunnlaugsson

Level II Hard Ice Guide

Ágúst Þór Gunnlaugsson byrjaði ungur að ganga á fjöll enda alinn upp við ferðalög um hálendið þvert og endilangt.  Útivist og fjallamennsku kynntist hann svo fyrir alvöru í skátunum sem unglingur og þá var ekki aftur snúið. Árið 2003 gekk Ágúst í Íslenska alpaklúbbinn og sat í stjórn hans 2005-2007. Hann er með virkari félögum klúbbsins og situr nú í ritnefnd klúbbsins.

Árið 2004 gekk Ágúst til liðs við Hjálparsveit skáta í Garðabæ og varð strax félagi í undanfarahóp sveitarinnar þegar nýliðaferlinu lauk 2006. Vorið 2006 fór hann ásamt undanfarahóp sveitarinnar til kanadísku klettafjallana á vikulangt fjallabjörgunarnámskeið auk þess að verja tveimur vikum við klifur og fjallgöngur á því magnaða svæði. Hann hefur kennt fjölmörg námskeið innan hjálparsveitarinnar og einnig fyrir Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Vorið 2008 hóf hann störf hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum við jöklaleiðsögn í Skaftafelli og á Sólheimajökli. Ágúst stóðst Level II próf í jöklaleiðsögn sumarið 2009 og hefur leitt hópa á Hvannadalshnúk og Hrútsfjallstinda auk margra annara fjalla fyrir ÍFLM. Auk leiðsagnar hefur Ágúst kennt á námskeiðum fyrir Íslenska Fjallaleiðsögumenn, bæði fjallamennsku og  námskeið um ferðamennsku á jöklum.

Útivist af öllu tagi, ís og klettaklifur, gönguskíði og skotveiði. Allt eru þetta áhugasvið og hæfileikasvið Ágústs.

Ágúst stundar nú nám í landfræði við Háskóla Íslands en lokaverkefni hans fjallar um Skeiðarárjökul og breytingar á sporði hans sem og breytingar á farvegi jökuláa sem renna frá honum.

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN