Lýsing: Í samvinnu við jeppaleiðsögumenn Iceland Rovers hafa Ísl. Fjallaleiðsögumenn nú þróað aðferðir við að framkvæma áhrifaríka sprungubjörgun komi til þess að einstaklingur falli í jökulsprungu. Aðferðin byggir að mestu leiti á sprungubjörgun eins og hún er framkvæmd af fjallamönnum en nýtir jeppann og einfaldari en þyngri búnað en göngumenn bera. Hausti 2010 var þessi aðferð kynnt fyrir leiðsögumönnum Iceland Rovers í formi tveggja daga námskeiðs.
Forkröfur: Námskeiðið er sérstaklega þróað og hugsað fyrir þá sem aka með ferðamenn um jökla í atvinnuskini en nýtist einnig vel fyrir áhugaökumenn sem vilja vera við öllu búnir. Ekki er gert ráð fyrir að nemendur hafi neinn grunn í línuvinnu eða fjallamennsku.
Mat: Ekkert mat er lagt á hæfni nemenda að svo stöddu.
Réttindi: Í vinnslu.
Kennsla: Kennt er með allt að 6 nemendur á hvern leiðbeinanda. Dagur 1 er kenndur innanhúss og miðar að því að kynna búnað og grunn aðferðir fyrir þátttakendum. Á degi 2 er farið í gegnum raunsæt dæmi um björgun á jökli. Innifalið: Kennsla, allur sérhæfður fjallamennskubúnaður, námsgögn. Ekki innifalið: Allur akstur og ferðir, gert er ráð fyrir að nemendur leggi sjálfir til bíla í verklegan dag.
Fyrir nánari upplýsingar og verð hafið sambandi við info@mountainguides.is
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996