Menntun og réttindi leiðsögumanna
Frá stofnun fyrirtækisins árið 1994 hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn stefnt að því að vera í fararbroddi í þjálfunar og gæðamálum í íslenskri ferðaþjónustu. Í daga er „fjalló“ þekkt sem eitt helsta þekkingarfyrirtæki landsins þegar kemur að framkvæmd ævintýraferða og náttúruvernd tengdri ferðaþjónustu. Þar sem ekki eru til opinberar reglur eða staðlar sem ná yfir öryggis og gæðamál í starfssemi eins og þeirri sem Íslenskir Fjallaleiðsögumenn stunda hefur fyrirtækið frá upphafi markað sýna eigin stefnu í þjálfunarmálum. Þjálfun starfsmanna hefur vaxið í jöfnu hlutfalli við fjölda starfsmanna – frá því að vera einungis ein helgi og upp í það að vera yfirgrips mikið kerfi sem tekur um tvö ár að klára. Vorið 2009 var byrjað að vinna eftir þessu kerfi sem er að mestu byggt á sambærilegu kerfi sem þróað að hefur verið á Nýja Sjálandi. Kerfið nær til þjálfunar þeirra starfsmanna sem vinna í leiðsögn á jöklum og fjöllum.
Nú eru reglulega haldin námskeið og próf á vegum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna í jökla- og fjallaleiðsögn. Flestir nemendur á þessum námskeiðum eru tilvonaði eða núverandi starfsmenn fyrirtækisins en námið er annars opið þeim sem sýnt geta fram á tilskilinn bakgrunn.
Fyrirtækið stendur einnig fyrir sérstöku námskeiði fyrir þá starfsmenn sem stunda leiðsögn á jeppum á jöklum landsins.
Flestir leiðsögumenn í lengri gönguferðum á vegum ÍFLM hafa lokið prófi í leiðsögn frá MK eða sambærilegu. Fyrir þennan hóp verður vorið 2012 boðið upp á framhaldsmenntun sem miðar að því að auka tæknilega færni leiðsögumanna í erfiðari ferðum fyrirtækisins, t.d. þegar gengið er yfir jökla.
Fyrirtækið hvetur einnig alla leiðsögumenn sína til að taka námskeið í fyrstu hjálp í óbyggðum og styrkir gjarnan sína leiðsögumenn á það námskeið sem og önnur námskeið sem geta nýst í starfi.
Námskeið fyrir nýja leiðsögumenn
Sveinspróf
Jöklaleiðsögumannapróf
Fagnámskeið í fjallaleiðsögn
ÍFLM Fjallaleiðsögumanna próf
Hnúkur II
Sprungubjörgun fyrir jeppabílstjóra