14.2.2012

Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum

Kæra göngufólk!
Þá er það fyrsta gangan okkar í „Toppaðu með 66°NORÐUR og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum". Miðvikudaginn 15. febrúar liggja leiðir okkar um forvitnilegt svæði í nágrenni höfuðborgarinnar, um Búrfellsgjá og Búrfell.

Búrfellsgjáin er hrauntröð sem myndaðist í gríðarmiklu eldgosi fyrir um það bil 7200 árum úr Búrfellinu. Svæði þetta er á náttúruminjaskrá enda telst gjáin ein sérstæðasta hrauntröð landsins. Búrfellið er eldstöð af þeirri gerð sem kallast eldborg en þær einkennast af því að gos hefur átt sér stað á stuttri sprungu og myndað stakan aðalgíg. Búrfellsgígurinn stendur einn og stakur, 180 m hátt yfir sjó, hlaðinn úr gjalli og hraunkleprum.

Gangan er þægileg og við gerum ráð fyrir 2-4 klst göngu. 

ALLIR VELKOMNIR ÞÓ AÐ SKRÁNING SÉ EKKI FRÁGENGIN

Brottför:
Kl. 17:30 frá verslun 66°NORÐUR í Faxafeni 12, stundvíslega. Gott er að sameinast í bíla eins og hægt er. Æskilegt er að farþegar skipti á milli sín eldsneytiskostnaði.

Gangan hefst við bílastæði undir Vífilsstaðahlíð (kl. 18.00). Þeir sem vilja geta komið beint á bílstæðið. Til að komast að bílastæðinu er hægt að fylgja þessum leiðbeiningunum og skoða kortið:

Við keyrum Reykjanesbrautina og beygjum inn Vífilsstaðaveginn hjá Vífilsstöðum og svo til hægri inná Heiðmerkuveg (895) að bílastæði. Leiðsögumenn taka á móti ykkur í sjálflýsandi gulum vestum.

GPS hnit á bílastæði: N64 03.653 W21 52.465

Veðurspá: (uppfært 8:30, þriðjudaginn 14.2.12, af vef veðurstofunnar)

Á miðvikudag:
Suðvestan- og vestan 10 m/s og rigning eða slydda. Hiti 1 til 5 stig, en frystir víða um kvöldið.

Útbúnaður:
Hlýr og skjólgóður fatnaður, vettlingar og húfa, góðir gönguskór, legghlífar og vasaljós eða ennisljós. Girnilegt nesti og heitur drykkur á brúsa er eðal. Gott er að hugsa vel um orkuforðann fyrir gönguna og borða vel í hádeginu og kaffinu á göngudegi.

Frekari upplýsingar um Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum má finna hér.
Skráningarsíða Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum
Facebook síða Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum  Fjallaleiðsögumönnum.

Hlökkum til að sjá ykkur.


Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN