Ná á dögunum var haldið tveggja daga Sprungubjörgunarnámskeið sérhannað fyrir jeppaleiðsögumenn. Fyrri dagurinn fór allur fram innan húss þar sem farið var yfir helstu aðferðir og tækni sem þarf að hafa við huga þegar kemur að sprungubjörgunum á jökli. Eftir að hafa lært að síga og klifra upp línu innan húss var seinni dagurinn keyrður í alvöru aðstæðum á Langjökli í fullkomnu veðri.
Þátttakendur sem að þessu sinni voru allir félagar í Jeppavinum voru sammála um nauðsyn þess að mennta alla leiðsögumenn í að takast á við þær hættur sem eru fyrirsjáanlegar í þeirra starfi.
Umsögn frá einum þátttakandanna: Námskeiðið uppfyllti held ég flestar mínar þarfir varðandi grunnþekkingu á mögulegum aðstæðum, búnaði og björgunaraðgerðum, jafnvel á að geta seinna meir æft sig við kjöraðstæður án handleiðslu leiðbeinanda.