13.1.2012

Opnar æfingar með Fjallafólki og Fjallagengi

Dagana 17. og 18. janúar verður boðið uppá opna prufutíma í fjallgönguhópa Íslenskra Fjallaleiðsögumanna. Dagskrá hópanna byggist á vikulegum þrekæfingum ásamt mánaðarlegum fjallgöngum allan ársins hring. Þrekæfingarnar fara að mestu fram á útivistarsvæðum Reykjavíkur og nágrennis. Einu sinni í mánuði er farið í kvöldgöngu á fjall í nágrenni Reykjavíkur í stað þrekæfingar. Þátttakendum fjallgönguhópanna gefst einnig tækifæri til þess að taka þátt í allt að 11 dagsferðum á sérvalda fjallstinda gegn vægu gjaldi.


Fjallgönguhópar Íslenskra Fjallaleiðsögumanna er kjörin leið til þess að halda sér frískum og í góðu formi allan ársins hring. Ef áramótaheitið 2012 er að koma sér í gott form, komast á fleiri tinda, eða stunda útivist og hreyfingu í góðum félagsskap þá eru fjallgönguhópar Íslenskra Fjallaleiðsögumanna eitthvað fyrir þig, Fjallafólk og Fjallagengið.


Opnir Prufutímar:
Fjallafólk: Hittist við Perluna þriðjudaginn 17. janúar stundvíslega kl 18:00.
Fjallagengið: Hittist við Perluna miðvikudaginn 18. janúar stundvíslega kl 17:30.


Hlökkum til að sjá sem flesta!




Lýsing á dæmigerðri þrekæfingu (ca. 1,5 klst.): Á hefðbundinni þrekæfingu er byrjað með 15 mínútna strunsi (upphitun) en síðan framkvæmdar fjölbreyttar æfingar með áherslu á almennan líkamsstyrk þar sem nær eingöngu er unnið með eigin líkamsþyngd.


Íslenskir Fjallaleiðsögumenn - Örugglega á Fjöllum

Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN