22.12.2011

Nýtt starfsár Fjallafólks að hefjast

Skráning er hafin í Fjallafólk fyrir árið 2012. Fjallafólk er hluti af hinum sívinsælu fjallgönguhópum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna. Dagskrá Fjallafólks byggist á vikulegum kvöldæfingum á þriðjudögum allan ársins hring. Þessar vikulegu þrekæfingar fara bæði fram á útivistarsvæðum í Reykjavík og nágrenni ásamt því að  einu sinni í mánuði er farið í kvöldgöngu í stað þrekæfingar á fjöll í nágrenni Reykjavíkur. Ásamt þrekæfingum og stuttum fjallgöngum er einnig farið í mánaðarlegar dagsferðir á fjöll í nágrenni Reykjavíkur. Þessar dagsferðir fara yfirleitt fram á laugardögum ef veður leyfir.

 

Fyrsta þrekæfingin fer fram þriðjudaginn 3. janúar og fyrsta laugardagsgangan verður með óhefbundnum hætti þar sem haldið verður eins dags námskeið í vetrarfjallamennsku. Á námskeiðinu verður farið í þætti eins og ísaxarbremsu og hvernig best er að beita sér þegar gengið er á broddum. Námskeiðið fer fram utandyra og verður staðsetning þess auglýst síðar.

 

Fjallgönguhópar Íslenskra Fjallaleiðsögumanna er kjörin leið til þess að halda sér frískum og í góðu formi allan ársins hring. Ef áramótaheitið í ár er að koma sér í gott form, komast á fleiri tinda, eða bara stunda útivist og hreyfingu í góðum félagsskap þá eru fjallgönguhópar Íslenskra Fjallaleiðsögumanna eitthvað fyrir þig, Fjallafólk og Fjallagengið.

 

Jólakveðjur 

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn - Örugglega á Fjöllum





Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN