18.11.2011

Næstu dagskrárliðir Fjallagengis, Brattgengis og Skíðagengis ÍFLM

BRATTGENGI ÍSLENSKRA FJALLALEIÐSÖGUMANNA:
Fyrstu dagskrár liðir Brattgengisins eru í næstu viku.
23. nóvember verður kynningarkvöld fyrir þátttakendur þar sem farið verður yfir dagskrá vetrarins.
26. nóvember verður fyrsta námskeiðið en það er ísklifur  námskeið. Námskeiðið verður haldið á Sólheimajökli eða hentugum ísfossi í nágreni Reykjavíkur - fer allt eftir aðstæðum.
Sjá nánar hérna:

Við hvetjum alla þá sem áhuga hafa að skrá sig á heimasíðu IFLM eða að hafa samband við skrifstofu IFLM.
Skráningarfrestur er til 20. nóvember.
Athugið að hægt er að dreifa greiðslum á allt að 6 mánuði.

FJALLAGENGI ÍSLENSKRA FJALLALEIÐSÖGUMANNA:
Fyrsta ferð Fjallagengis á þessu starfsári var síðast liðinn laugardag. Fór 25 meðlimir á Hafnarfjall í fylgd tveggja leiðsögumanna. Ferðin gekk í alla staði og hópurinn ángæður með fyrstu ferðina.
 
SKÍÐAGENGI ÍSLENSKRA FJALLALEIÐSÖGUMANNA:
Enn eru nokkur sæti laus í Skíðagengið en fyrsti dagskrár liður er 30. nóvember þegar farið verður yfir þann útbúnað sem nauðsynlegt er að hafa þegar farið er í Fjallaskíðaferðir.
Skráningarfrestur í Skíðagengið er 30. nóvember.

Við minnum einnig á að fyrir vanara Fjallaskíðafólk verður hægt að skrá sig í stakar ferðir með Skíðagenginu gegn greiðslu.
Fjallafólk Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Brattgengið
Fjallgengið
Toppaðu með 66°N og ÍFLM 2011
Námskeið
Tilboð í sérhópa
Hafa samband

Nýleg verðlaun:

Skrifstofa:

Bankastræti 2

101 Reykjavík

Sími/Fax:

Sími: +354 587 9999

Fax:+354 587 9996

Powered by ODIN