Í kvöld, miðvikudaginn 9. nóvember mun Leifur Örn Svavarsson sjá um að kynna nýja jakkann Snæfell frá 66°Norður og hans helstu eiginleika. Ásamt því verða kynntar klifurvörur frá CAMP og Cassin og síðast en ekki síst fjallaskíði frá LaSportiva. Kynningin fer fram í verslun 66°Norður Faxafeni 12 milli klukkan 20 og 21. Verslunin verður hins vegar opin frá 20 til 22 og verða eftirfarandi tilboð í gangi:
- 20% af öllum vörum 66°Norður
- 30% af öllum Asymetrick VAUDE pokum
- 30% af öllum Exped og Exel stöfum
- 30% af öllum dýnum
Við vonumst til að sjá sem flesta áhugasama um fjallamennsku og útivist mæta á þetta frábæra kynningarkvöld.
Kv.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn - Örugglega á Fjöllum!