Fjögurra daga nýliðaþjálfun fer fram í apríl.
Fyrir þá leiðsögumenn sem starfa við leiðsögn á jöklum og fjöllum hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn sett upp þjálfunardagskrá sem er einsdæmi hér á landi. Gerð er krafa um að leiðsöguefnin hafi til að bera grunn í fjallamennsku og línuvinnu þegar nýliðaþjálfun hefst. Flestir leiðsögumenn Íslenskra Fjallaleiðsögumanna hafa þennan grunn úr starfi með björgunarsveitum landsins en einnig er hægt að afla sér reynslu með því að sækja þau námskeið sem ÍFLM & ÍSALP bjóða upp á, sækja sambærileg námskeið erlendis eða með ástundun fjallamennsku.
Fyrirtækið leitar að einstaklingum sem hafa nægilega tæknilega færni til að hreyfa sig af öryggi á jöklum, geta framkvæmt einfaldar sprungubjarganir og geta tekið þátt í flóknari aðgerðum sem hluti af liðsheild. Viðkomandi verður einnig og ekki síður að vera fær um að skemmta gestum sínum, fræða þá og tryggja öryggi þeirra í krefjandi landslagi. Verkefnum til einstakra leiðsögumanna er úthlutað í takt við getu og reynslu.
Athugið að starfið hentar báðum kynjum.
Frekari upplýsingar má finna hér: Laus Störf