Við viljum einnig þakka fyrir samstarfið á liðnu ári og vonumst að sjálfsögðu eftir góðu ferðaári árið 2012.
Líkt og síðustu ár höfum við ákveðið að senda einungis rafrænt jólakort á bæði samstarfsaðila og viðskiptavini okkar. Þessi ákvörðun er partur af
umhverfisstefnu fyrirtækisins.

Gaman er að geta þess að síðastliðna morgna hafa jólasveinarnir komið einn á fætur öðrum með umhverfis og flokkunarráð til starfsmanna ÍFLM og viljum við endilega deila með ykkur ráðleggingu frá góðvini okkar honum Giljagaur:
„
Það má alls ekki gleyma að flokka sorp yfir hátíðirnar, Sterk rauður jólapappír (meiri hlutinn rauður) og gylltur pappír er óvelkominn í pappírsgáminn og fer því í almennt sorp. Annar jólapappír má fara í bláa grenndargáminn eða skilast í pappírsgáminn á endurvinnslustöðvum SORPU.“
Bestu kveðjur
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn – Örugglega á fjöllum